Ég held að RÚV hafi eitthvað á móti finnum, á laugardaginn klipptu þeir á söngvakeppnina þeirra og daginn eftir sýna þeir þegar rússar rústa þeim í hokkí, ég meina, hokkí!
Ég skil það samt ekki alveg, það höfðu eflaust fleiri manns áhuga á söngvakeppninni heldur en kosningunum. Það segir samt meira til um samfélagið okkur og stjórnmál heldur en gæði söngvakeppninnar.
Ég var sjálfur að íhuga að gera "ugla sat á kvisti..." á kjörseðilinn, en þegar ég opnaði augun sá ég að "það varst þú" var Frjálslindi flokkurinn svo ég hugsaði minn gang.
Hvað er annars búið að gerast síðan ég rankaði við mér af prófadvala? Annað B-ið að fara að segja upp valdastöðu sinni, svo bara ár í hitt. Blair minntist á að innrásin í Írak hafi kannski verið mistök. Heimskari menn en hann hefðu getað bent honum á það hvenær sem hann vildi hlusta.
Sjálfstæðisflokkurinn er víst enn vinsælasti flokkurinn á Íslandi. Það er allt í lagi svo sem, ég get ekki séð að við höfum það svo slæmt hérna á meðan hann er við lýði, þó það hefði verið gaman að fá smá sósjíalisma til tilbreytingar. Við skulum þó ekki útiloka VGD (borið fram eins og um hræðilegan sjúkdóm sé að ræða) stjórn næstu fjögur árin, en ef svo verður þá endist hún ekki lengur en það, það getum við bókað.
En jæja, það finnst ekki öllum stjórnmál skemmtileg svo við skulum því vinda okkur yfir í uppáhaldsumræðuefni allra, Brynhildi Hafdísi.
Fyrsta tönnin er komin, með viðeigandi nagi og pirringi. Ekki nóg með það heldur eru fyrstu orðin komin í grundvallarútgáfum, ég var að henda henni upp í loftið áðan og segi þá alltaf "hoppa," þegar ég hætti svo þá tók hún við og sagði "oppa." Ég var mjög ánægður með hana. Hún er ekki alveg farin að segja pabbi en "papa" og "dada" og eru nokkuð skýr, sömuleiðis er "mamma" nokkurn vegin komið.

Þegar tennur koma þá þarf að bursta þær, þessi sæta móðurmjólk eru guðaveigar fyrir Karíus og Baktus

Það er reyndar skrítið með svona börn, sum þeirra sleppa út ákveðnum stigum í þroskaferlinu, til dæmis er Brynhildur Hafdís byrjuð að lesa áður en hún er byrjuð að tala.

Annars er hún sem betur fer ekkert spennt fyrir því að byrja að skríða, þó hún sýni öll merki þess að hún kunni það. Því seinna sem ég þarf að byrja að elta hana út um allt því betra.

Prófin gengu ágætlega, einkunnir eru þó ekki komnar enn. Mamma kom og passaði þar seinustu helgi, en þar sem hún var upptekinn í útlöndum þessa helgi þá þurfti ég að sjá um stelpuna. Engin vandamál þar á ferð.

Pabbi er ágætur

Hún er að sjálfsögðu orðin svolítið upptekinn af útlitinu og farin að greiða sér á afar sérstakann hátt.

"Namminamminamminammi" er líka komið

Hún er líka farin að borða alveg sjálf, ég ætla að kenna henni að elda bráðum, svona til að borga allt þetta rúm og fæði.

Að ganga frá eftir sig að loknum hádegisverði

Það er búið að vera gott veður og svo virðist sem henni líki ágætlega í sólbaði. Þess ber þó að geta að samkvæmt barnaverndarlögum má hún ekki vera út í sólinni óvarin og er það ekki, né má hún drekka svala og gerir það ekki.

Hver er kúl? Ég er kúl!

Brynhildur Hafdís er nautnaseggur eins og svo margir aðrir og nýtur hún auðvitað þeirra stunda í lífinu þegar hún þarf ekki að hafa áhyggjur heldur bara slaka á í heitu baði

Ég sagði hver er kúl?! Ég er kúl! Brynhildur er með taktana á hreinu

Brynhildur Hafdís: Tollir ekki bara í tískunni heldur býr til nýja tizkustrauma

Tívolí eru ofmetin