Setti allar gömlu síðurnar (archives; hér að ofan) upp eins og þær voru á þeim tíma sem þær voru skrifaðar. Þannig að ef þú smellur á, til dæmis, "janúar 2004", þá lítur síðan (að mestu leyti) út eins og hún gerði þá.
Þannig er að ég breyti sniðinu hérna á, að minnsta kosti, nokkurra mánaða fresti og mér finnst gaman að sjá hvernig þessi síða hefur þróast í gegnum árin. Það er sérstaklega áhugavert að skoða síðuna frá því áður en ég byrjaði að nota FireFox, en í þá daga var Internet Explorer vafrinn sem allir notuðu. Það er reyndar að mestu ómögulegt að skoða síðurnar núna í öðru en IE því fyrirtækið sem býr til þann hræðilega vafra hefur aldrei verið mikið fyrir að virða staðla sem gott og skynsamt fólk hefur fyrir að búa til svo að allir í heiminum geti leikið saman á sameiginlegum grundvelli, nei, þeir vilja að allir borgi fyrir að nota þeirra leikvöll. Umrætt fyrirtæki reiðir sig á að fólk
þurfi að nota vörurnar þeirra og reynir eftir framsta megni að koma því þannig fyrir að ekki henti að nota vörur annarra.
Þangað til FireFox kom á markað viðurkenndi fyrirtækið ekki að neinir staðlar væru til aðrir en þeirra eigin. Tímarnir eru breyttir í dag sem betur fer, ekki nema tveim árum síðar. Svo er bara að vona að eitthvert stýrikerfi verði jafn vinsælt til að ná að ógna einræðinu. Þessar eru breytingar til hins betra. Treystið því.
Hvernig finnst ykkar annnars nýjustu breytingarnar hérna?