|
Litla snúllan varð eins mánaðar gömul í gær.
Helsti sjáanlegi munurinn er hvað hún er orðin sköllótt ofan á kollinum greyið, svo gömul. Fleiri tímamót urðu þó, en í dag þá fór hún í fyrsta sinn í meira en 10 metra frá móður sinni þegar hin síðarnefnda fór í klippingu. Sú litla var ósköp róleg í bílnum, en sú ákvörðun var tekin að keyra um með hana svo hún svæfi þessar hörmungar af sér. Þetta var heldur engin venjuleg klipping sem eldri daman fór í, hún klippti sig nefnilega stutt. Valið stóð á milli þess að lita hárið eða klippa það upp að rótinni (hennar eigin lit sem hún hefur safnað í rúma 5 mánuði núna) og er útkoman hreint út sagt frábær að mínu mati. Ég hafði mínar efasemdir - þrátt fyrir að hafa hvatt hana til þess - þar sem það fer ekki öllum stelpum vel að vera með stutt hár. Ég varð þó ekki fyrir vonbrigðum og er ekki frá því að hún sé jafnvel sætari en nokkru sinni fyrr, þó hún sé nú alltaf sæt. Þið verðið þó að dæma það sjálf við annað tækifæri, ég vil halda fólki spenntu í augnablikinu... var gefin út í dag með engum smá viðbætum. Ég þori að fullyrða að engin verður fyrir vonbrigðum með þær breytingar sem hafa verið gerðar.Sömuleiðis er morgundagurinn afar merkilegur í tölvuheimum því þá kemur opinberlega út útgáfa af sem ég hef beðið eftir með eftirvæntingu í þó nokkurn tíma. Mun þessi útgáfa einnig státa af flottum og frábærum nýjungum.Mæli með því að áhugasamir skoði þessar útgáfur. Ástæður þess að þessar útgáfur eru eins "flottar" og raun ber vitni er væntanleg útgáfa MicroSoft á Vista stýrikerfi sínu sem átti að koma út í haust, en kemur út eftir áramót. Eins og þeir sem hafa fylgst eitthvað með vita, eru allir að keppast við að sýna hversu ómerkilegt stýrikerfið er. MicroSoft á nóg af peningum, en þeir eru búnir að sýna fram á að peningar geta ekki keypt sköpunargáfu. ![]() Nú er hægt að horfa á (og/eða hlaða niður) Plan 9 from Outer Space á Google Video. Þeir sem hafa séð bíómynd Tim Burtons Ed Wood ættu að kannast við fyrrnefnda mynd, en hún hefur til dæmis fengið þann vafasama heiður að vera versta mynd sögunnar. Fleiri myndir eru þarna í fullri lengd, þá myndir með firrtan höfundarrrétt, eins og Night of the Living Dead og Nosferatu. Vonandi bætast fleiri með tímanum, aðgengi að svona myndum hefur verið misjafnt í gegnum tíðina og væri því frábært að varðveita kvikmyndasöguna á þennan hátt. Meðal annarra verkefna Google er að setja allar bækur í heiminum á netið þannig að hægt er að leita í þeim nýrri og lesa þær eldri og sömuleiðis að setja öll dagblöð á netið þannig að hægt sé að skoða þau. Núna vantar bara að þeir finni upp tækni til að finna hluti í íbúðinni minni.
30 þúsund manns á tæplega 3 árum. Það þýðir 10 þúsund á ári sem þýðir um 27 á dag. Gott að halda utan um þetta.
Er það ekki samt frekar lítið? Já og Birta mælir með kærustunni minni
Það er svo fáránlega gott veður núna að það kom mér ekki á óvart að geitungur sveimaði um í bakaríinu eins og svo marga sumardaga. Ég hélt að þeir ættu að vera löngu dauðir í ár.
Það sem kemur þó á óvart er að annar hver (karl)maður í VR-II þykist geta látið vaxa á sér yfirvaraskegg, en sú iðja krefst mikillar reynslu og færni, svo ekki sé minnst á ásættanlegt magn af karlhormónum. Mottukeppnin í ár verður full af vonbrigðum.
Ég er mjög sáttur við nútímavæðingu fiskbúða höfuðborgasvæðisins undir merkinu "Fiskisaga." Þó ég hugsi afar hlýtt til kaupmannsins/fisksalans á horninu þá líkar mér mun betur það úrval og útlit sem verslanirnar eru að fá á sig. Fyrr á öldum var einungis hægt að fá fjórar fisktegundir og lyktin var ömurleg. En eins og allt annað í nútímasamfélagi er búið að sótthreinsa fiskbúðirnar líka.
Ég bý í vesturbænum, sem er einn af fáum stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem kaupmenn á horninu þrífast enn. Þá helst vegna þess að hér þykir flott að versla við þá. Ekki það að þessar verslanir séu í raun eign einhverja smákaupmanna sem reka eigin verslun af metnaði og stolti - ætli Fjarðarkaup sé ekki síðasta slíka verslunin, ef það er ekki búið að selja hana - nei, þessar búðir eru í eigu stærri fyrirtækja líka. Eini munurinn á þessum búðum og stílhreinum og vel hönnuðum nýtízkubúðum er andrúmsloftið sem óhjákvæmilega skapast í þessum þröngu og illa skipulögðu vöruhrúgum sem sumar þessar verzlanir eru - nefni engin nöfn - á meðan aðrar geta verið afskaplega þægilegar og heimilislegar. Mér er reyndar sama hver á búðina svo lengi sem hún uppfyllir þrjú einföld skilyrði; verðið er fólki bjóðandi, vörur eru til og umhverfið er þannig að maður getur ímyndað sér að koma aftur þangað ótilneyddur. Þegar kemur að þessum "nýju" fiskverslunum þá uppfylla þær þessi þrjú skilyrði, ólíkt forverum þeirra. Það er gott að það sé búið að finna upp fiskinn fyrir nýja kynslóð sem hefur allt of mikið úrval matar, það er gott að geta verslað á stöðum sem maður getur ímyndað sér að koma aftur í og það er gott að borða góðan fisk.
Íslandsmeistaramótið í bandý var haldið núna um helgina. Hugmyndin var að taka þátt, við vorum meira að segja komin með nokkuð gott lið núna í vor. En allt kom fyrir ekki - hvað sem það þýðir - og núna yrði ég ánægður ef fleiri en fimm manns myndu mæta til að spila.
Ég vil spila bandý!!! ...eða fótbolta, nennir einhver í fótbolta?
Það kom í ljós að seinasta færslan var jafnframt 500. færslan hér. Mér fannst það eiginlega bara nokkuð merkilegt.
Get samt ekki ákveðið hvort mér finnist það vera mikið eða lítið, miðað við að 500. færslan var skrifuð nákvæmlega þrem árum og einni klukkustund á eftir fyrstu færslunni. Margt hefr breyzt á þremr árum.
Fengum nokkrar góðar heimsóknir í gær. Fyrst kom Guðlaug ljósmóðir í síðasta sinn til að skoða dömurnar. Hafði hún allt gott um þær að segja. Næst komu foreldrar mínir og við borðuðum hamborgara saman. Loks kom svo Harpa Hrund með hreint dýrindis gjafir.
Á meðan á öllu þessu stóð svaf litla daman. Hún vaknaði ekki nema einu sinni á milli gesta til að borða smávegis. Ég er farinn að halda að hún vilji bara ekki sjá annað fólk en okkur. Þessi maður - sem nýorðin er afi - var að gefa út hljómplötu núna í vikunni, Gönguferð á sandi, og skemmst er frá því að segja að hún er afbragðsgóð. Eins og stendur í fréttatilkynningu um útgáfuna þá er "[t]ónlistin á Gönguferðinni [...] ljúf og lágstemmd, jazzskotin og með skandinavísku ívafi." Ég hef fengið góðfúslegt leyfi til að deila nokkrum lögum hér meðal ykkar framtíðarkaupenda plötunnar og hef valið lokalag plötunnar, Sumarkvöld í garðinum, auk lags sem hún Telma syngur og heitir Hughreysting.
Það var hringt í Telmu áðan, kona frá þættinum X-Factor (með hinu alíslenzka „c“-i) sem verða á Stöð 2 í vetur. Þau vildu vita hvort Telma væri fáanleg til að taka þátt í keppninni.
Eins og ég skil þetta þá er bæði hægt að skrá sig sem einstaklingur og í hóp og sagði konan sem Telma talaði við að mælst hefði verið til þess að stofnaður yrði hópur úr þremur fyrrverandi Idol-„stjörnum“, en auk hennar Telmu hefði verið Margrét og Angela sem mér skilst að báðar hafi verið í Smáralindarhluta Idol þáttanna seinasta vetur. Eins og sönnum aðdáenda þótti mér þetta afar spennandi, þó ég sé ekki alveg viss um heillindi þáttarins og ég vilji síður ræða opinberlega hvað mér finnst um þær persónur sem valdar hafa verið til að dæma þátttakendur. Augljóslega afþakkaði Telma þessa beiðni mjög pent, en auk þess að hafa líklega fengið nóg af þessum bransa í fyrra þá er það meira en full vinna að annast barn, stunda háskólanám og hafa ofan af fyrir mér á sama tíma. Svona þættir taka mikinn og dýrmætan tíma og er ég því afskaplega ánægður að Telma hafi jafnvel minni áhuga á þessu en ég. En af öðrum söngmálum þá var pabbi hennar Telmu, hann Kristinn Níelsson að gefa út þennan ágæta geisladisk sem ber nafnið Gönguferð á sandi. Verður hann vonandi fáanlegur í öllum betri hljómplötuverslunum. Telma syngur einmitt tvö lög á þessum disk og fæ ég vonandi leyfi til að setja einhver lög hérna á netið til afhlustunar. Meira um það seinna.
Fyrir þá sem eru forvitnir en þora ekki að spyrja þá er allt gott að frétta héðan. Það er kannski best að byrja á byrjuninni.
Lætin byrjuðu á fimmtudagsmorgunn og fór fimmtudagurinn að mestu leyti í bið. Þegar við vorum nýsofnuð um kvöldið (um 2 leytið) tilkynnti Telma mér að hún hefði misst vatnið. Við náðum því í handklæði og biðum eftir að hríðirnar myndu byrja á fullu. Klukkan 4 vorum við svo kominn upp í Hreiðrið (sem er staðsett á kvennadeild Landspítalans við Hringbraut). Var þetta löng nótt og ströng en þess má þó geta að ljósmæðurnar dáðust af hörkunni í henni Telmu. Klukkan 9.36 fæddist svo þessi litla stelpa. Eftir smá svefn og áttun tókum við svo á móti nánustu ættingjum. Föstudagsnóttin fór einnig fram á Hreiðrinu, en eftir að læknir hafði skoðað litlu dömuna héldum við heim á leið, barni og stöðumælasekt ríkari. Hún er ekki alveg búin að segja sín fyrstu orð eða taka sín fyrstu skref ennþá en ég á von á því bráðum. Hún fór aftur á móti í sitt fyrsta bað í morgun og er því sætari en nokkru sinni fyrr. Í stuttu máli þá gengur allt vel hér. Allt er ennþá að komast í vana - ég held til dæmis að ég geti farið að halda eðlilega á henni mjög bráðlega - en við erum mjög bjartsýn. Ljósmóðirin sem hefur komið daglega til að skoða litlu segir hana fullkomna í alla staði, eða hún meinar það allavega. En eins og ég segi þá verður hún farin að keyra bíl áður en ég get sagt ferming. |
Andjörð
Aðrar vefsíður: Nýjustu athugasemdirnar: |