|
laugardagur, september 30, 2006
fimmtudagur, september 28, 2006
Frægur
Ég var í fréttunum áðan. Reyndar var bara örstutt brot þar sem ég var önnum kafinn í vinnunni, sem skýrir af hverju ég man ekki eftir því að þessar myndir hafi verið teknar. Tapsæri
Fórum á okkar fyrsta húsfund í kvöld. Þar fræddumst við um hin ýmis húsmál og urðum í öðru sæti í spurningakeppni, hefðum unnið ef við vissum eitthvað um íþróttir. Fengum samt pakka af ljósritunarpappír í næstum-því-fyrsta-sæti-verðlaun, fyrstu verðlaun voru betri. miðvikudagur, september 27, 2006
Kurteisishjal
Eins og fróðir menn hafa tekið eftir þá... líkar mér illa sú málnotkun að þegar talað er um menn þá sé einungis átt við karlmenn en ekki menn almennt, en allaveganna ...er í dag settur dagur hjá henni Telmu. Litla krílið hefur þó ekki látið á sér kræla og bíðum við því jafn spennt og aðrir, jafnvel spenntari. Eins og reyndir menn vita þá höfum við enn tvær vikur til að koma barninu í heiminn á náttúrulegan hátt, eftir það er fæðing framkölluð. Algengast er víst að fyrsta barn komi um viku eftir settan dag. Eru því spurningar um framgang mála frábeðnar þangað 11. október. Ekki að mér finnist ekki gaman að ræða slík mál... reyndar finnst mér það fínt. Ég þekki fólk sem segist leiðast "rabb um daginn og veginn" (þýðing ensk-íslensku skólaorðabókarinnar á "small talk") og mér finnst frekar óþægilegt að vera í kringum það. Ekki eins og það sé nógu erfitt að finna eitthvað til að tala um heldur þarf líka að passa sig að segja eitthvað gáfulegt. Það útilokar næstum allt sem ég hef að segja! Svo spyrjið mig bara hvernig Telmu gengur, hvort ég eigi barn eða hvernig mér finnist veðrið. Barnið er ekki komið ennþá en veðrið er mjög fínt. mánudagur, september 25, 2006
Umferð
Ég var að komast að því að það eru eitthvað í kringum hundrað manns að skoða síðuna hennar Telmu á hverjum degi. Síðan er allt í allt skoðuð um 160 sinnum á hverjum degi. Telma er augljóslega mun vinsælli en ég og því ætla ég að bregða á það ráð að setja nokkrar ólettumyndir af mér hérna, sjá hvort það dugi ekki. Hér er ein af mér á 40. viku:
sunnudagur, september 24, 2006
Einu sinni...
þegar ég var unglingur þá hringdi vinur hans Árna einu sinni í hann og ég svaraði símanum. En þar sem hann var uppi og ég niðri þá spurði ég vin hans hvort hann væri ekki til í að leggja á og hringja aftur og ég myndi leyfa Árna að svara. Eitthvað hefur hann þó misskilið þetta því hann hringdi ekki aftur í örugglega nokkra daga. Það er alveg fáranlegt hverju maður fær samviskubit yfir 15 árum síðar. Ég jafna mig samt alveg örugglega. fimmtudagur, september 21, 2006
Talandi um hávaða
Mikið væri ég nú til í að fara að sjá Shai Hulud spila í kvöld, bara ef hinar hljómsveitirnar væru ekki svona mikið uppfyllingarefni. miðvikudagur, september 20, 2006
Niðurrif
Það standa yfir framkvæmdir í húsinu okkar, nánar tiltekið í salnum og leikskólanum. Venjulega eru bara læti í leikskólunum tveimur sem eru báðir staðsettir fyrir utan svefnherbergið okkur, annar fyrir neðan okkur og við hliðin á en hinn deilir með okkur garði, sem sagt báðir í mjög góðu kallfæri. Lætin í krökkunum venjast þó furðu vel, á sama hátt og ég tek lítið eftir flugvellinum sem er í bakgarðinum okkar. En þegar verið er að banka með hamar í svefnherbergisvegginn á milli 8 og 6 þá er mér hætt að lítast á. Framkvæmdirnar eiga að standa yfir í 6 vikur skilst mér og standa líklega lengur. Ég vona að væntanlegt afkvæmi mitt sé það vant höggum, titring og hávaða að það geti sofið í gegnum þetta allt saman. Ef ekki þá venst það og kvartar svo þegar iðnaðarmennirnir fara og það er ekkert eftir nema barnagrátur, öskur, hávaði í flugvélunum og þessa ógeðslega lykt sem gegnumsýrir ganganna hérna, hvort sem nýbúið er að bóna þá eða ekki. Það er samt gott að búa á Stúdentagörðunum. þriðjudagur, september 19, 2006
Allt er svo gott sem er amerískt...
29 ára írakskur karlmaður var sleppt úr haldi í gær eftir að hafa sætt kæru fyrir "felony disorderly conduct." Málsatvik voru þannig að karlmaðurinn var á leið í gegnum skoðun á flugvelli þegar öryggisvörðurinn finnur grunsamlegt tæki í bakpoka karlmannsins. Þegar maðurinn var beðin um að útskýra hvað þetta tæki var - sem í raun var pumpa til að stækka lim karlmanns - þá hvíslaði hann að öryggisverðinum að þetta væri "pump," eða pumpa. Þess má einnig geta að móður mannsins stóð við hlið hans og er því alls ekki ólíklega að álykta að maðurinn hafi verið ögn skömmustulegur. Öryggisvörðurinn hélt því hinsvegar staðfast fram að maðurinn hefði skýrt og greinilega sagt "bomb," eða sprengja. Hringt var á liðsauka og maðurinn færður í fangageymslur. Mánuði síðar ákvað dómari að sönnunargögn væru ekki nóg til að dæma manninn í fangelsi. Persónulega finnst mér að það ætti að dæma öryggisvörðinn, það ætti að mega hengja fólk fyrir svona heimsku. Ef við erum heppinn verður næsta stríð bandaríkjamanna "The war on stupidity™" og að nær öllu leyti háð innan þeirra eigin landamæra. Þá fyrst geng ég í herinn...afsakið, friðargæsluna meina ég. mánudagur, september 18, 2006
Fortíðin að
Tók mig til og setti inn nokkur framúrskarandi lög sem ég hef ýmist verið að ná í að heiman eða verið á leiðinni að setja inn hér til hliðar. Þessi lög eiga það öll sameiginlegt að hafa haft mikil áhrif á mig á einn eða annan hátt. Þau koma hér í röð útgáfu. NOFX - Linoleum (1994) Therapy? - Screamager (1994) Megadeth - Diadems (1994) Fear Factory - Self Bias Resistor (1995) Millencolin - Bullion (1996) Lagwagon - Leave the Light On (1998) Dillinger Escape Plan - 43% Burnt (1999) föstudagur, september 15, 2006
Tikk
Bleiupakkarnir stungu ekki í augun þar sem þeir lágu á milli barnarúmsins og skiptiborðsins. Þeir verða þó ekki opnaðir strax. Allt annað er einnig tilbúið, eða að minnsta kosti á sjóndeildarhringnum. Allt er því kyrrt. laugardagur, september 09, 2006
Gengið til góðs ...rauði hvað?
Við Telma fórum í gönguferð áðan þar sem Telma vildi athuga hvort þyngdaraflið myndi kannski hjálpa henni við að láta barnið koma sér betur í grindinni, sem heitir víst að barnið skorði sig. Við gengum niður á Austurvöll þar sem er ljósmyndasýning, ákváðum að skoða hana á heimleiðinni því Telmu langaði svo í einhverja súkkulaðiköku. Við röltum því upp Laugaveginn í hægindum okkar, Telma verandi á stærð við offitusjúkling. Það var ömurleg þjónusta á kaffihúsinu, ég er á því að maður á ekki að þurfa að bíða lengur eftir matnum heldur en tíminn sem það tekur að borða hann, sérstaklega ekki ef maður biður um eitthvað sem þegar er tilbúið! Svo kíktum við í lágvöruverslunina Tiger því Telmu langaði í svona skrefamæli, skil ekki alveg hvernig slíkt virkar, en þar hitti hún einhverja gamla vinkonu sína og þær spjölluðu eitthvað voðalega mikið. Á heimleiðinni skoðuðum við þessa ljósmyndasýningu; myndir af borginni frá ýmsum tímum, mjög flott allt saman. Sáum líka tvær stelpur dansa magadans við Austurvöll í tilefni stjóriðjumótmæla dagsins í dag, fannst þær frekar lélegar greyin. Röltum svo meðfram tjörninni og loks gegnum háskólasvæðið og komumst heim í heilum lögum, en ég held að kúlan hafi lítið sigið samt. Kannski er þetta frekar þrjóskt barn sem við eigum. miðvikudagur, september 06, 2006
Við erum íslendingar, við tölum um veðrið
Það rignir víst í Kaupmannahöfn, en ég hef það fyrir víst að það er 27 stiga hiti og sól í Viktoríu á Vancouver eyju við vesturströnd Kanada og að kanadískur bjór er drykkjarhæfur. Danskur bjór er líka fínn. Það er voðalega vinsælt að fara eitthvert langt í burtu. Ég ætla þá bara að hafa það huggulegt hérna heima með innfluttan bjór og ófríska kærustu ...afsakið, unnustu meina ég. föstudagur, september 01, 2006
Bæbæ Bíbí
Litli fuglinn minn er kominn með nýtt heimili, ég gaf hann frá mér áðan. Hann er vonandi á betri stað, ef ég hef rétt fyrir mér þá er hann karlkyns og þá er hann kominn með litla sæta ástargaukskærustu sem getur sagt honum hvað hann á að gera og kúrað aðeins með honum inni í búri. Ef ég hef rangt fyrir mér og hann er kvenkyns þá er hann hún og hún getur bara verið komin með litla sæta ástargaukskærustu sem getur rifist við hana og kúrað með henni inni í búri. Eða þau/þær geta líka bara verið vinir, ég vona að minnsta að þau/þær verði ekki óvinir, það væri ömurlegt. Ég held samt að ég hafi rétt fyrir mér og að þetta sé strákur. Hann er allavega ekki lítli Bíbíinn minn lengur. Bæbæ Bíbí. Uppfært: Það vill svo rosalega heppilega til að nýji eigandinn er ekki bara mikill fuglamaður heldur einnig vel netvæddur og hef ég því tök á að fylgjast aðeins með framvindu mála. Sjá hér. |
Andjörð
Nokkrar vel valdar teiknimyndir:
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|