|
fimmtudagur, ágúst 31, 2006
Áfram Ísland!
eða Nei, ég er ekki of kúl til að viðurkenna að mér er ekki sama um framgöngu Magna í raunveruleikuþættinum Rockstar Það er merkilegt hvað íslendingar geta gert þegar þeir vinna í sameiningu. Hvað annað ætli við gætum gert? Safnað miljónum fyrir bágstadda? Kosið betri ríkisstjórn? Tekið yfir heiminn? Möguleikarnir eru endalausir. Fyrir tveim mánuðum síðan þoldi ég ekki Magna, fannst hann hundleiðinlegur söngvari í hundleiðinlegri hljómsveit. Mér finnst hljómsveitin reyndar ennþá hundleiðinleg en Magni ... ég er reyndar ekki búin að mynda mér skoðun um hann, en hann keppir þarna úti fyrir mína hond. Íslendingar eru stolt þjóð. Of? Ég er ekki viss hvað mér finnst um þetta allt saman, eitt er þó víst, ég var furðulega kvíðinn í gær þegar ég beið útkomu kosningarinnar. Ætli Ástralar séu jafn spenntir? fimmtudagur, ágúst 24, 2006
Þú segir það
Var að fá spilara í bílinn, hann spilar mp3 skjalategundina. Þetta þýðir að ég get skrifað diska sem eru að minnsta kosti tíu sinnum lengri en hefðbundnir geisladiskar, eða um 12 klukkustundir samkvæmt mínum útreikningum. Ég velti því fyrir mér hvort ekki væri hentugt að framleiða spilara sem læsu einnig dvd diska, en þá gæti ég skrifað diska sem væru um 85 klukkustundir. Ef aftur á móti ég væri með Blu-ray diskana gæti ég hæglega fjórfaldað þetta og ef ég væri svo ótrúlega heppinn að eiga spilara sem gæti spilað HVD diska þá myndi ég geta hlustað samfellt í um það bil 8 ár án þess að hlusta á sama lagið aftur, miðað við að ég myndi aldrei slökkva á tækinu og að tækið myndi ekki bila. Þetta er allt reyndar eftir mínum útreikningum og við vitum öll að stærðfræði er ekki mín sterka hlið, en ef við gefum okkur að hver mínúta af tónlist taki um það bil 0,92 megabyte og að HVD diskur geti geymt 3,9 terabyte þá held ég að þetta sé rétt hjá mér. miðvikudagur, ágúst 23, 2006
Undarlegt
Ég trúði því eiginlega ekki fyrst, vissi ekki um neinn sem væri veikur núna, eftir allt saman þá er enn sumar. Hvaðan fær maður eiginlega hálsbólga þessu dagana? þriðjudagur, ágúst 15, 2006
Er þetta ósanngjarnt grín? Hvað er óraunhæf sjálfhverfa?
Þegar próf leggst þannig að svona veður er daginn áður getur það hreinlega ekki lofað góðu. Langsótt? Neinei. Ég ætla að vera svooo duglegur að lær... mmm, ís. laugardagur, ágúst 12, 2006
Tár, bros og kommóða
Það var líka þessi fína útsala og ég fékk líka þessa fínu takkaskó! Ég er ekki viss um að ég hafi nokkurn tíma átt takkaskó áður, ekki einu sinni þegar ég var að æfa fótbolta, en eins og sönn Aðalönd stóðst ég ekki 50% afsláttinn. Næstum gefins bara! Þeir fara örugglega líka vel með rauðu spandex dragtinu sem ég ætla í niður í bæ á eftir, ég er samt ekki viss um að takkaskór falli vel inn í kvöld, rauðir eður ei, ég vil ekki láta mikið fara fyrir mér, frekar en venjulega. úntje, úntje, úntje, úntje... Ég er reyndar ekki viss um að ég hafi nokkurn tíma átt kommóðu heldur, að minnsta kosti ekki kommóðu sem hægt er að setja fólk ofan á. Ég á klifurskó einhversstaðar, kannski litla krílið geti notað þá til að klifra niður af kommóðunni. fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Ég borga ekki afnotagjöld.
Það var undarlegir léttir þegar ég gekk út úr fréttastofu sjónvarps í síðasta sinn, með þematónlist spilandi i hausnum á mér. Afleiðing þess að horfa of mikið á sjónvarp. Fólkið hélt áfram að vinna vinnunna sína og hrópa þess á milli um klippingar og tökur, öllum var sama nema mér. Ég gekk fram ganginn laus við eftirsjá, brosti til fréttamanns á leiðinni að nýja fína bílnum mínum sem við keyptum fyrir blóðpeningana sem Ríkisútvarpið kreistir að því er virðist úr óviljugum landsmönnum. Ég borga ekki afnotagjöld. Bíllinn er blár skutbíll, með pláss fyrir vagn aftur í og óléttubílbelti frammí. Hann er ekki besti bíll í heimi en við höfðum efni á honum og hann er okkar. Mér létti vel og lengi, alveg þangað til ég áttaði mig á öllu sem ég þarf að gera núna. Úff. Best að hlakka frekar bara til þegar hið vonda er búið og hið góða byrjar. Illu er bestu af lokið. föstudagur, ágúst 04, 2006
Það er hættulegt að stunda almenningssamgöngur
Strætóbílstjórar eru misjafnir og sumir þeirra virðast frekar óhæfir í starfi sínu. Það getur þó verið ánægjulegt að ganga á morgnanna út á stoppistöð í góðu sumarveðri þegar vaknað var nógu snemma til að þurfa ekki að hlaupa. Það segir sig þó næstum sjálft að oftast er hlupið. Það er áhugavert að sjá ófríska konu hlaupa... Ég mun þó ekki þurfa að leggjast svo lágt að nýta mér almenningssamngöngur mikið lengur, gula kortið mitt rennur út í næstu viku með ráðningasamningi hjá Ríkisútvarpinu. Ég er nokkuð viss um að þetta sé í fyrsta skipti sem ég get með sanni sagt að ég eigi eftir að sakna starfsins. Ég veit þó hvenær barátta er vonlaus og hefði því eflaust ekki enst mjög lengi á stað sem býður ekki upp á meiri sköpun en bráðlega fyrrverandi vinnustaðurinn minn. Árni verður þó eftir þar og óska ég honum góðs gengis og vona jafnframt að hann njóti starfsins jafn vel og jafnvel betur og ég naut míns. Auk þess/þar fyrir utan/að auki/aðeins/ef til vill/sennilega/má vera/gæti átt sér stað/mætti ætla að/hugsanlega er það í fréttum að ég fer að verða pabbi mjög bráðlega og hef ég stóra kúlu þess til vitnis. Kúlan er mjög sæt og fín, alveg eins og Telma mín. Án þess að vilja ýkja eða neitt þá verðum við að sjálfsögðu flottasta litla fjölskylda í allri veröldinni, vittu bara til! |
Andjörð
Nokkrar vel valdar teiknimyndir:
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|