miðvikudagur, maí 31, 2006
 
Mér finnst

rosalega gaman þegar fólk skrifar athugasemdir hjá mér.
 
mánudagur, maí 29, 2006
 
Þetta er

ekki rétti tíminn til að vera veikur!
 
föstudagur, maí 26, 2006
 
Ég er að fara að flytja í nýja íbúð

Það er í þriðja sinn á einu ári. Sem er allt í lagi því fyrir það hafði ég ekki flutt í tuttugu ár.
 
miðvikudagur, maí 24, 2006
 
Einmitt

Mér finnst afar áhugavert að það sé tengill á spilafíkn á heimasíðu íslenska getrauna.

Sömuleiðis fannst mér afar áhugavert að sjá CRASS merki innan um allskonar rándýrar tískuvörur í búð í Gautaborg. Anarkismi selur vel í dag.

Heimurinn er fullur af kaldhæðni.
 
sunnudagur, maí 21, 2006
 
Skandinavía er ágætispláss

Kjæmpe bra
 
sunnudagur, maí 14, 2006
 
Haglél og sólskin, hvað er norðurlandalaegra?

Það er uppselt á Belle and Sebastian tónleika hérna í Ósló í kvöld, ég hefði alveg viljað fara á þá.
 
föstudagur, maí 12, 2006
 
Stríðsástand á görðunum

Alltaf verið að sprengja hérna á háskólasvæðinu, finnum reyndar ekki mikið fyrir því hér í úthverfunum. Þetta er frekar óhugnalegt ásamt því að vera frekar svalt.
 
fimmtudagur, maí 11, 2006
 
Það er ekki oft sem ég nota upphrópunarmerki í formlegum skrifum

Ég var í þriðja sinn á ævinni að fá bréf frá LHÍ. Mér finnst þeir leiðinlegir!
 
miðvikudagur, maí 10, 2006
 
Ég á nokkrur hlutabréf í Bandaríkjunum (einnig þekkt sem dollarar)

Það virðist vera góð hugmynd að selja þá áður en þeir fara á hausinn. Venjulega myndi ég fagna því að gengið er að hækka.
 
mánudagur, maí 08, 2006
 
Eftir nokkra daga fer ég til Noregs

Dagarnir mínir skiptast fyrir framan þrjár tölvur. Á milli níu og fimm þá er ég fyrir framan tölvuna í vinnunni, á milli sex og tíu er ég við tölvu uppi á Þjóðarbókhlöðu og loks eyði ég síðustu tveimur vökustundunum fyrir framan mína elskulegu heimilistölvu.

Það er gaman að skrifa ritgerðir.
 
laugardagur, maí 06, 2006
 
Hálfvitar

Hvernig dirfist Anima að leggja nafn sitt við það rusl sem Sála í ár er?! Stjórn Animu ættu að skammast sín og ritnefndin ætti að vera rekin úr sálfræði, ef þeir falla ekki út sjálfir.

Ef fólk tekur þá ákvörðun að gera eitthvað þá skal það gera það vel, frekar að sleppa því bara alveg heldur en að gera það illa. Metnaðarleysi er sorglegt og verra þegar það bitnar á öðrum, til dæmis sálfræðiskori í heild sinni.
 
föstudagur, maí 05, 2006
 
Blablablablaðið

Skoðun mín verður víst á blaðsíðu 24 í Blaðinu á morgun. Þar er ég eitthvað að röfla meira um verksmiðjubúskap, sem lesendur eru vinsamlegast beðnir um að rugla ekki saman við venjulegan búskap. Fyrir þá sem ekki fá Blaðið heim til sín eða nálægt heimili sínu þá er það á hér í tölvutæku formi.
 
miðvikudagur, maí 03, 2006
 
Á nýju stigi seddu

Ég fékk áhugaverðustu máltíð lífs míns áðan á Sjávarkjallaranum. Mamma og pabbi voru svo góð að bjóða mér og Telmu óvænt út að borða og við þáðum það án þess að vita hvert við værum að fara. Ég get núna sagt að ég hef smakkað að minnsta kosti 5 fleiri hluti heldur en ég hafði í gær, þar á meðal wasabe, hörpuskelfisk, kengúrukjöt og margt fleira. Áhugaverð lífsreynsla, mæli eindregið með þeim.
 
mánudagur, maí 01, 2006
 
Bleikur!

Pabbi hringdi áðan til að bjóða mér á Roger Waters tónleikana í júní, sem ég nýlega tjáði honum að væru utan viðráðanlegs verðramma fyrir greyið mig. Ég reyndar nenni ekkert sérstaklega svo ég pent afþakkaði og sagði honum að ég væri viss um að hann fyndi einhvern annan...EINMITT!!! Syngist: Ég er að fara á Roger Waters! Ég er að fara á Roger Waters!

Gaman af því. Ætla að hlusta á Pink Floyd í smá tíma og hringja svo í Dylan og fá hann til að skrifa nokkra diska fyrir mig sem ég á ekki. Ertu með í því?
 
 

karljohann@hotmail.com

Andjörð

Nokkur vel valin lög:
My Chemical Romance - Helena
Rancid - Time Bomb
Operation Ivy - Sound System
Bad Religion - Stranger than Fiction
Melt Banana - Spathic
Vonbrigði - Ó, Reykjavík
Coheed and Cambria - In Keeping...
Bouncing Souls - Bryan's Lament

Nokkrar vel valdar teiknimyndir:

Vinir og vandamenn:
Telma cócó
Árni bróðir
Drífa mágkona
Sigga frænka
Þórir
Eikey
Harpa
Vestanpósturinn
Hildur
Jón Hálfdanarson
Gunni frændi
Erna María
Birna
Sigrún Birna
Unnur
Sóley
Hlín
Gaui
Svala
Óli Gneisti
Elfa Dröfn

Aðrar vefsíður:
7½ teiknimyndir
Wulffmorgenthaler
Háskólakórinn
Hugsandi
Greinar
Ríkisútvarpið
Vantrú
Greinar
Dordingull.com
Dálkurinn
Stúdentablaðið
A N I M A
Rokk.is
Betrefi
Andspyrna

Eldri skrif:
Júní (2006) Maí (2006) Apríl (2006) Mars (2006) Febrúar (2006) Janúar (2006) Desember (2005) Nóvember (2005) September (2005) Ágúst (2005) Júlí (2005) Maí (2005) Apríl (2005) Mars (2005) Febrúar (2005) Janúar (2005) Desember (2004) Nóvember (2004) Október (2004) September (2004) Ágúst (2004) Júlí (2004) Júní (2004) Maí (2004) Apríl (2004) Mars (2004) Febrúar (2004) Janúar (2004) Desember (2003) Nóvember (2003) Október (2003)

Site Meter gestir síðan 4. nóv 2003


Powered by Blogger