|
þriðjudagur, janúar 31, 2006
Orðið "ókei" getur orsakað flökti í efnivið alheimsins ef sagt rétt
Það þarf ekki allt að vera rökrétt, það þarf ekki allt að vera dramatískt, það þarf ekki allt að vera. Ef einhverjum vantar rauðan bíl þá er ég maðurinn sem viðkomandi ætti að leita til, já, ég á rauðan bíl. Hann fer á 150 þúsund íslenskar krónur. Það er mjög stór tala, óþarflega stór jafnvel, kannski ég endurorði þetta: hann fer á 1500 hundruð íslenskra króna. laugardagur, janúar 28, 2006
Það eru til verri hlutir
Minns og míns barasta kominn í framboð! Sönnun fylgir. Ég hélt satt að segja að ef ég færi einhvern tímann á lista þá yrði það fyrir Röskvu, en ég fer þangað sem mín er þarfnast (eins og segir í enskunni) og verandi ötull stuðningsmaður hugsjónar og róttækra breytinga þá... áfram H-Listinn! Ég ætla samt að taka fram að listinn þyrfti að fá um 65% atkvæða til að ég fengi að gera eitthvað sniðugt. Uppfylliefni er víst fólk líka. föstudagur, janúar 20, 2006
Ég ætla að gera eins og Árni
...og setja niðurteljara á síðuna mína. Hann er þarna efst uppi núna, eða verður það allavega þangað til sjöunda febrúar. miðvikudagur, janúar 18, 2006
Góðan daginn
Sá tími kemur ávallt, jafnvel oft á dag, í lífi ungs manns þar sem hann þarf að ákveða hvort hann ætli að fá sér morgunmat eða hádegismat. Í grundvallaratriðum er maturinn hin sami, en upplifunin er aðeins öðruvísi. Í dag ætla ég að fá mér hádegismat, en á morgun, hinn, hinn og jafnvel hinn ætla ég að fá mér morgunmat. þriðjudagur, janúar 17, 2006
Það var þá það
Hrós vikunnar fá: gaurarnir sem ýttu bílnum mínum upp brekkuna í Hamraborginni. Er ekki annars komið nóg af þessum blessaða snjó? Ef ég vildi búa í snjóhúsi þá myndi ég flytja til Akureyrar. Subway fyrir að opna stað í Hamraborginni. Af hverju gerðu þeir það samt ekki áður en ég flutti úr Kópavoginum? Steinunn fyrir verkfærin. Mér finnst ég miklu meiri karlmaður þegar ég þarf ekki alltaf að fá verkfærin lánuð hjá pabba, hvort sem það er ímyndun eða ekki. Sigga frænka fyrir að vera málefnaleg á vefsíðunni sinni og kórinn fyrir að sýna góðan stuðning. Síðast en ekki síst fær Telma stærsta hrósið fyrir að komast ekki áfram í Idol, guði sé lof, dúxa í þýsku á laugardaginn og fá námslán, allt í sömu andrá. föstudagur, janúar 13, 2006
Temmatemmatemmatemmatemma
Hún Telma er að fara að sjá hvort hún komist áfram í ædol. ![]() Helstu styrktaraðili keppninnar er Coke og þátturinn er sýndur á Stöð 2. Um keppnina er aðallega fjallað í Séð og heyrt, Hér & nú og DV. Mér líður illa að hafa þessi nöfn hér á síðunni... blaðið sem talið var upp í miðjunni sýndi einmitt myndir af sigurvegara síðastliðinnar viku, kærustu hennar og húsi sem þær búa í. Ef Telma kemst áfram mun hún þurfa að sóa heilu dögunum í förðun, æfingar og annað slíkt meðfram sálfræðináminu og ég get sagt ykkur það að það er ekki lítið ætlast til af þessum krökkum. Þetta er ekki merkileg "keppni" og er í raun hluti af botni þeirrar siðmenningar sem við höldum svo mikið upp á, gott sjónvarpsefni kostar sitt skilst mér. Engu að síður er gaman að vinna og við vitum öll að Telma er best, svo áfram Telma! Allir að kjósa hana á morgun milli 21:35 og 22:00 í síma 900 9006 og þá fær Telma ókeypis klippingu og svona flotta mynd eins og allir keppendur sem komast áfram fá. Kjósið rétt, kjósið Telmu. fimmtudagur, janúar 12, 2006
Undanfarið
Vikurnar hafa verið þétt skipaðar. Ég er núna formlega fluttur að heiman, lögheimili mitt er núna að Eggertsgötu 22. Flutningarnar voru áhugaverðir og athugasemdalausir. Skólinn er byrjaður aftur, loksins hafa allar einkunnirnar skilað sér og ég get stoltur haldið áfram námi mínu óáreittur, með allar þær forkröfur sem deildinn krefst. Vaknaði í morgunn við hljóð frelsis, hljóð símans, hljóð einkunnar, gott hljóð. Ég held því áfram í sama fari, í bili að minnsta kosti, því er lítið að frétta. Annars sór ég þess eið um áramótin, ekki heit eins og sumir vilja kalla það, ekki er ég svo plebbalegur, að ég myndi eyða minni tíma hangandi í tölvunni. Þetta er reyndar tilkomið vegna þess að ég þarf mikið að læra í tölvunni en í grundvallaratriðum þá er þessi eiður sórinn til að vera skipulagðari í námi mínu og tímaeyðslu, tíma sem ég hef furðulítið af, furðulega furðulítið. sunnudagur, janúar 01, 2006
Gleðilegt nýtt ár
Íslendingar ákváðu í þögulli sameiningu að lýsa þyrfti upp himininn einu sinni á ári með sprengjum, þessi göfuga hugsjón og sprengigleði kostar sitt en skilar sér þó í fögrum himni, reykmettuðu andrúmslofti og heyrnaskaða. Ég hætti að nenna að sprengja þegar ég var unglingur en það er fínt að svona margir hafa ennþá gaman af þessu, annars væri gamlárskvöld ekki jafn spennandi. Æ já, gleðilegt ár og takk fyrir gamla, það var eiginlega bara það sem ég ætlaði að segja. |
Andjörð
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|