föstudagur, desember 30, 2005
 
Jólin afstaðan í bili

Fyrir þá sem voru að spá í því þá er ég komin suður í heilu lagi, og rúmlega það og vil ég þakka virðulegum gestgjöfum okkar fyrir yndislega helgi/viku.
 
miðvikudagur, desember 28, 2005
 
Nálgast markmiðið

Markmiðið er að komast til Reykjavíkur. Við áttum pantað flug í gær, seinni flug. Það var ófært um morgunninn svo fólkið sem var svo óheppið að eiga pantað flug þá fékk að fara með fluginu okkar, aðferðarfræði flugfélagsins sem má deila um. Við gerðum okkur því tilbúin til að halda af stað næsta morgun, í morgun. Það var fært til að byrja með en þegar við vorum komin út í bíl fengum við skilaboð þess efnis að fluginu yrði frestað. Það entist þó ekki lengi og við héldum af stað niður á flugvöll og innrituðum okkur. Fjarvera flugvélar olli mér smá hugarangri og veitti mér ekki mikið öryggi í því að komast heim bráðlega. Þessar áhyggjur reyndust ekki tilefnislausar og við hirtum farangurinn og héldum aftur leiðina til Bolungarvíkur. Á endanum var fluginu aflýst og okkur sagt að reyna aftur á morgun.

Á morgun er bráðum svo við verðum bara að vona það besta og krossleggja fingur. Ef þetta gengur ekki eftir þá er jafnvel hægt að setjast að hér fram að vori, íbúðir hér eru á afar viðráðanlegu verði ólíkt þeim sem eru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu og bærinn er ósköp viðkunnalegur þrátt fyrir að vera eins norðarlega og flestir skynsamir menn treysta sér til að búa, 66°N.
 
 
Nú jæja?

Ég er víst í Séð og heyrt eftir allt saman.
 
laugardagur, desember 24, 2005
 
Jólin í ár

Ég er þá kominn til Bolungarvíkur með hinum helmingnum.

Tók allt jólastressið út á einum degi, fimmtudegi. Þar sem mánudagur fór í próf, endurlífgun Magdalenu og hljómsveitaræfingu, þriðjudagur fór í jólagjafaskoðunarundirbúning og undarlega mikið Ædol. Miðvikudagur fór í tiltekt, matarboð og lítil jól og fimmtudagur í allt annað sem hægt er gera á einum degi rétt fyrir jól. Föstudagurinn var svo tekin allt of snemma í uppvask, sendingu jólapakka og flug.

Ferðin aftur á móti byrjaði vel, fyrir utan að ferðafélaga okkar beið sjúkrabíll á Ísafjarðarflugvelli. Við tvö fengum sem betur fer ákjósanlegri farkost, hjá föður Telmu og lögðum við svo í að sækja Kópavogsmærnar tvær. Aðra á sjúkrahúsið.

Því næst voru jólainnkaupin kláruð og jólatré keypt áður en haldið var í skötu á Flateyri. Ekki þykir mér eftirsóknarvert, né Þóri sem reyndi óðum að telja mig ofan af því, að borða skötu sem marineruð hefur verið upp úr þvagi. Ég get ekki skilið freistinguna við að láta amoníak ofan í sig almennt. Ég hélt mig því að mestu leyti við barnamáltíðina sem var plokkfiskur og sé meira en ekki eftir bitanum sem ég lét ofan í mig.

Í dag er svo Aðfangadagur og hér eru börn að skreyta jólatré, amman að baka smákökur og konan að pakka inn gjöfum. Ekki amaleg jól það.

Til allra þeirra sem ég hef ekki óskað gleðilegra jóla og jafnvel til allra þeirra sem ég hef það gert þá geri ég það nú.

Gleðileg jól!
 
mánudagur, desember 19, 2005
 
Ég var á leiðinni að fara að flasha biosið þegar allt reddaði sér sjálft

Vandamálið við námið mitt er að ég á erfitt að einbeita mér að bóklega hlutanum. Þegar ég les eina bók þá langar mig að fara að forrita eitthvað sniðugt og fullt af hugmyndum fara í gang. Þegar ég les aðra bók þá langar mig að fara að setja upp nýtt stýrikerfi og breyta klukkutíðni örgjörfans mín, sem veitir ekki á gott.

Með öðrum orðum þá er ég orðin allt of mikill tölvunörd fyrir minn eigin smekk.

Annars þá er

Ókeypis að senda myndskilaboð í desember. Ég ákvað að nýta mér þá þjónustu og senda fullt af myndum á myndasíðuna Andjörð, sem bráðum fær nýtt nafn. Úúú, spennandi...


Ég ætla þá að fara í próf, lofið mér að þið eigið gleðilegan dag.
 
laugardagur, desember 17, 2005
 
Nú er kominn tími til að svara öllum keðjubréfum sem ég hef nokkurn tímann fengið


Ef þú skilur eftir athugasemd hér þá skal ég segja þér...

1. eitthvað handhófskennt um þig.
2. hvaða lag minnir mig á þig.
3. hvaða mynd/þáttur minnir mig á þig.
4. hvaða bragð minnir mig á þig...eða ekki.
5. eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
6. fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
7. á hvaða dýr þú minni mig.

Síðan ætla ég á morgunn að segja ykkur hvað ég myndi gera ef ég væri stelpa.
 
föstudagur, desember 16, 2005
 
Svo eru það Vestfirðingarnir

Þeir eru ædol fans líka.
 
 
Míns bara komin með eigin síðu

Sem er hérna.

Annars er það í fréttum að heimsóknir hingað hafa náð tuttuguþúsund markinu og skoðanir hafa náð 28.778 markinu, sem er eitthvað sem ég hef stefnt að alveg frá því ég man eftir mér.

Er minnið að bregðast?

Kjósið Telmu!
 
fimmtudagur, desember 15, 2005
 
Míns bara á netinu

Það er loksins kominn upp síðan sem var auglýst í sjónvarpinu seinasta föstudag þar sem hægt er að skoða keppendur sem munu koma fram á morgun. Hún býr hér.
 
 
Gabba gabba hey

Kvöldið á morgunn fer aðallega í það að sjá hvort Telma komist áfram í Idol keppninni sem verður sjónvarpað á morgunn á stöð 2. Það vill svo heppilega til að símtækjaeigendur fá að ákveða hvaða fólk kemst áfram, svo ég hvet ykkur því að kjósa hana Telmu, mig langar nefnilega að fá mynd af mér í Séð og heyrt á miðvikudaginn og ekki viljið þið nú valda mér vonbrigðum, er það? Svona rétt fyrir jólin...
 
 
Einmitt

Ákvað að taka snjóinn í burt, hann var að leiðinlegur við stýrikerfið mitt, það verða bara að vera rauð jól í Reykjavík.
 
miðvikudagur, desember 07, 2005
 
Segðu

Þykir einhverjum í ár of mikill snjóþungi á síðunni?
 
föstudagur, desember 02, 2005
 
Hvítur sykur og hvítt hveiti.

Mikil neysla á fínunnum sykri (hvítum sykri) getur haft í för með sér að næringarþéttni fæðisins verði lítil og að þörf kyrrsetufólks fyrir næringarefni sé ekki fullnægt. Ástæðan er sú að hvítum sykri fylgja engin lífsnauðsynleg vítamín né steinefni - aðeins orka. Ef þörf okkar fyrir næringarefni er ekki fullnægt, getur það leitt til næringarefnaskorts sem getur haft slæm áhrif á líkamann. Hvítur sykur er einnig slæmur fyrir tennurnar.

Hvítt hveiti inniheldur ýmis lífnauðsynleg næringarefni en þó í mun minna magni heldur en er til staðar í heilu hveiti. Hvítt hveiti er því snauðara af vítamínum, steinefnum og trefjum heldur en heilhveiti eða hveitiklíð. Þetta er meginástæða þess að hvítt hveiti hefur verið talið óhollt, þó svo að það hafi ekki beint slæm áhrif á líkamann - er það bara ekki eins hollt og heilkorn. Þar sem uppistaðan í fæði fólks er brauð, þá gæti verið hætta á næringarefnaskorti ef aðeins hvítt hveiti er notað í baksturinn.

[...]Ekki hefur verið hægt að sýna fram á með vísindalegum rannsóknum að hvítur sykur og hvítt hveiti séu beinlínis skaðleg fyrir líkamann (nema hvað þau geta hugsanlega stuðlað að því að næringarþéttni fæðisins verði ekki fullnægjandi eins og áður er sagt).


- Ingibjörg Gunnarsdóttir, næringarfræðingur fyrir Vísindavef Háskóla Íslands
 
 

karljohann@hotmail.com

Andjörð

Nokkur vel valin lög:
Coheed and Cambria - In Keeping...
Bad Religion - Generator
Bouncing Souls - Bryan's Lament

Vinir og vandamenn:
Árni bróðir
Telma Björg
Sigga frænka
Drífa
Perla Rós
Urður Ósk
Iðunn Nótt
Cócó
Eikey
Harpa
Sigrún Birna
Þórir
Hildur
Guðný Lára
Jón Hálfdanarson
Gunni frændi
Erna María
Birna
Vestanpósturinn
Unnur
Sóley
Hlín
Birkir Mofo
Elfa Dröfn
Óli Gneisti
Eitthvað annað

Aðrar vefsíður:
7½ teiknimyndir
Háskólakórinn
Hugsandi
Vantrú
Greinar
Dordingull.com
Dálkurinn
Betrefi
Stúdentablaðið
A N I M A
Selið
Rokk.is
Betrefi
Andspyrna

Eldri skrif:
Nóvember (2005) September (2005) Ágúst (2005) Júlí (2005) Maí (2005) Apríl (2005) Mars (2005) Febrúar (2005) Janúar (2005) Desember (2004) Nóvember (2004) Október (2004) September (2004) Ágúst (2004) Júlí (2004) Júní (2004) Maí (2004) Apríl (2004) Mars (2004) Febrúar (2004) Janúar (2004) Desember (2003) Nóvember (2003) Október (2003)

Site Meter gestir síðan 4. nóv 2003


Powered by Blogger