|
miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Ég nenni ekki einu sinni að upphugsa góðan titil
Ekkert í mínu lífi þessa daganna er frásögum færandi, því er ég að framkvæma mótsögn með því að skrifa þetta, það er ef mótsögn er eitthvað sem maður getur framkvæmt. Engar áhyggjur samt, mér líður alveg ágætlega. Veit ekki hvað ég get sagt meira um það. laugardagur, nóvember 19, 2005
miðvikudagur, nóvember 16, 2005
Vertu ósamhverfur
...það fer þér ekki vel en það er auðveld leið til að vera öðruvísi Bíllinn minn er orðin undarlega ósamhverfur, vinstra megin er framljósaperan sprungin og hægra megin vantar hjólkopp. Ég held ég hætti bara að keyra þangað til einhver finnur út úr þessu. Eða ef veðrið verður vont. föstudagur, nóvember 11, 2005
Ek vil ei verzla hjer lengr
Ég held að hlutirnir hafi verið ögn öðruvísi hérna í gamla daga, jafnvel aðeins einfaldari sumir hverjir. Til dæmis fór ekkert á milli mála hvert þú þurftir að fara ef þig vantaði eitthvað, verzlanir hétu nöfnum eins og Fatabúðin, Kjöt og fiskur, Lífstykkjabúðin, Tösku- og hanskabúðin, Melabúðin, Hljóðfærahúsið og þess háttar. Slík nafnagjöf er allavega ekki mikil álag á minnið. Í dag eru hverfisbúðirnar útdautt fyrirbæri og þess í stað verzlum við hjá keðjum sem tóku nafn sitt af opnunartíma sem ekki lengur stenzt. Get ekki sagt að ég sakni þeirra daga þegar eina sælgætið sem var til var pólsk súkkulaðikex og fátækleg - en þó gæða - íslensk framleiðsla. Opnunartímar óháð stund sólarhrings finnst mér frábært satt að segja, allir þessir valmöguleikar virðast reyndar vera að gera okkur feit og löt en það er eitthvað sem við þurfum einfaldlega að læra inn á og þar endar sú hugleiðing. fimmtudagur, nóvember 10, 2005
Stundaðu á það
Ég er svo góður í að ýta á "blunda" takkan á vekjaraklukkunni minni að ég get gert það þó ég sofi. Kannski ég geti nýtt mér þennan hæfileika minn mér til gagns, er ekki alveg viss hvernig samt. Allar hugmyndir um hvernig eru vel þegnar. mánudagur, nóvember 07, 2005
Ég man...
Ég hef tekið eftir því að myndræn gögn hjálpa oft mjög mikið við að skýra mál sitt, því set ég hér fram sönnunargögn a og b sem voru orsakavaldar þesssarar miklu vangavelta hér að neðan. Þessi mynd sýnir mig á Austurvelli í október fyrir ári síðan. Þökkum Óla Gneista fyrir að taka svo fríða mynd. Hér höfum við svo mynd tekna á sama tíma ári seinna. Loks höfum við svo mynd frá síðustu helgi þar sem ég var sérstaklega kvaddur upp í Árbæ til að afskíra fólk í undarlegum fötum. sunnudagur, nóvember 06, 2005
Nám og tilraunir
Með aldrinum lærir maður ýmislegt. Hlutir tengjast saman og smám saman verðum við að þeim manneskjum sem við erum. Þessir hlutir eru til dæmis að eldur er heitur, vatn er blautt, sumt fólk er einfaldlega heimskt, gras er grænt á sumrin, ekki blanda saman tequilla og hvítvíni (skilst mér), það er vond lykt af sumum hlutum, ekki stökkva fram af stórum kletti nema þú viljir deyja, aldrei versla í Tölvulistanum, himininn á það til að vera blár, það er ekki fýsilegt að vera feitur í hinu vestræna samfélagi, ekki treysta fólki, ekki borða of mikið í einu og svo framvegis. Sumar þessar reglur eru örlítið háðar túlkun og má þar nefna að borða ekki of mikið í einu. Fyrir rúmlega einu og hálfu ári síðan þá ákvað ég til dæmis að gera smá tilraun og fita mig aðeins. Markmiðið var að ná 82 kg en ég var í 74. Þetta gekk illa fyrst og ég þyngdist ekkert en um leið og ég áttaði mig á því að borða alltaf meira en ég þurfti þá fór þetta allt að ganga mun betur. Mánuðurnir liðu og eftir þrjá þeirra var ég kominn upp í 85 kg og svo næst 90. Mér fannst þetta helst til slæmt en eftir sumarið var ég kominn upp í mest 92 kg. Þá ákvað ég að nóg væri komið, sérstaklega þar sem annar hver maður, hvort sem hann þekkti mig eða ekki, var að minnast all harkalega á það hvað ég hefði nú fitnað mikið. Þetta var seinasta haust og þá kom ég mér fljótlega aftur undir 90 kg. Ég hélst þar í þó nokkurn tíma en smám saman fór ég aftur niður eftir að ég fór að hemja mig og er núna kominn í 85 kg sem er alveg í góðu og held ég að 82-85 sé ágætis kjörþyngd fyrir mig. Mér til afsökunar þá neyddi engin þig til að lesa þetta. föstudagur, nóvember 04, 2005
Ég ætlaði
Að vera sniðugur og senda inn mynd af frábæru afmælisgjöfinni minni en út af einhverjum ástæðum þá eru einhverjir samskiptaörðugleikar á milli símans minns og andhiminns. Því verð ég að biðja ykkur um að ímynda ykkur ofboðslega flottan og þægilegan rauðan sófa sem svífur. Hann er svona eins og þessi nema rauðari, flottari, skemmtilegri og minn. Telma má líka nota hann, hún á reyndar helming svo ég gæti ekki bannað henni það þó ég vildi. Ég vil það ekki samt. Jæja
Ég átti einu sinni leikjatölvu, veit ekki hvar hún er nákvæmlega. Ég hafði einu sinni rosalega gaman af tölvuleikjum, ekki lengur samt. Skil það ekki alveg, ég hafði svo rosalega gaman af þeim að ég eyddi mörgum stundum fyrir framan sjónvarpið og reyndi að bræða ekki úr tölvunni. Ég er hálf leiður yfir þessu, mér skilst að fullorðið fólk megi líka alveg hafa gaman af tölvuleikjum, en þetta veitir mér ekki sömu ánægju og það gerði, ekki frekar en tuskudýr. Stundum fæ ég illt í bakið, það er kannski eðlilegt miðað við hvernig ég sit og sef, ég þarf víst að fara að huga að heilsunni meira, ég er ekki 25 ára lengur, öll gráu hárin samþykkja það á frekar litlausann hátt. En grátt hár er víst svart í myrkri, ekki gleyma því. Eyddi deginum í ýmislegt og margt af því. Borðaði mikið, keypti hluti og fékk aðra gefins, það var meira að segið sungið fyrir mig, af kór í þokkabót. Allt í allt var þetta fínn dagur, takk fyrir mig. fimmtudagur, nóvember 03, 2005
Jamm
Þetta er alveg hreint magnað, það er víst óvart búið að finna út hvernig á að fá hvítt ljós með LED (díóð sem gefa frá sér ljós) og ætlunin er að þróa það til notkunar á hinum almenna markaði. Þetta þýðir að ljósaperur verða óþarfar, það þarf næstum aldrei að skipta um ljósgjafa og það verður hægt að láta ljósið koma frá hvaðan sem er (til dæmis er hægt að vinna þessi díóð inn í málningu). Lítið sem ekkert rafmagn þarf til að gefa þessu orku og þetta hitnar sama og ekki neitt. Leit okkar að hinu þægilega lífi er komin skrefi nær endalokum. Haldið þið ekki að framtíðin sé björt? miðvikudagur, nóvember 02, 2005
Íslendingar og brunabjöllur
Ég var að velta því fyrir mér þegar ég kom inn áðan og óþolandi hávær hringing meiddi í mér hljóðhimnurnar hvort það væri ekki alveg eins gott að sleppa brunabjöllum á Íslandi. Í fyrsta lagi þá fara þær svo oft í gang þegar það er engin eldhætta að engin tekur mikið mark á þeim lengur og svo er þessi "það-gerist-ekkert-slæmt-fyrir-mig(nema-auðvitað-þegar-það-gerist-eitthvað-pínu-slæmt-og-þá-á-ég-mest-bágt-í- öllum-heiminum)" afstaða íslendinga svo vel innrætt að hlutirnir reddast alltaf hvort sem er. Eða svo skilst mér. þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Prinsessur og nornir
Tugir barna klæddir upp í búninga er skemmtilegra en tugir barna í "venjulegum" fötum. Af hverju eru þau ekki alltaf í búningum? Eflaust einhverjar skynsamlegar ástæður fyrir því. Þeir þrjúhundruðsextíuogeitthvað dagar ársins sem maður er ekki í búning eru ekki jafn skemmtilegir og þeir sem maður er það. Ég legg því til að við afnemum samfélagsleg, stofnunarleg og úrelt klæðaburðsviðmið og klæðum okkur í hverju sem okkur sýnist. Ég ætla til dæmis að fara að klæða mig sem prestur dagsdaglega. Annað hvort það eða lita hárið rautt og sækja Dr. Martens klossana upp í Kópavog. Friðþæging, ekkert annað
Það hljómar eins og viðunandi afsökun að segja að maður hafi ekki tíma til þess að skrifa hér á síðuna, en eins og glöggir menn myndu eflaust benda á - ef þeim væri boðið að gera svo - þá tekur ekki langan né mikinn tíma að hnipra einhverju niður, með lyklaborði, svona ef ekki nema bara til að friðþægja það fólk sem hingað kemur á hverjum degi upp á vanan. Það er auðvitað spurning um skipulagsleysi frekar heldur en tímaleysi, en staðan er sú að blogg er ekki beint hátt á listanum mínum yfir hluti til að hafa áhyggjur af núna og hef því ekki haft miklar áhyggjur af skrifskorti. Það hlýtur því að vera tilbreyting fyrir suma að nýr texti blasir hér við og stingur jafnvel suma í augun, en eins og ég hafði sagt þá ætlaði ég að skrifa eitthvað í nóvember, ég sagði samt ekki að það yrði áhugavert. |
Andjörð
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|