|
þriðjudagur, september 27, 2005
Ég var að hugsa...
um að taka út alla litina á síðunni hérna til þess að hafa hana í stíl við veðrið og svoleiðis, en svo áttaði ég mig á því að það væri allt of mikið vesen, svo ég ákvað að sleppa því og skrifa frekar að ég ætlaði að gera það. Þá er ég búin að tala um veðrið. föstudagur, september 23, 2005
Veit ekki alveg með þetta
En leikir eru skemmtilegir svo við skulum reyna þennan. 1. Ég er ekki mikið fyrir að gefa upp hluti um sjálfan mig. 2. Ég er í tveimur hljómsveitum og ég elska pönktónlist. 3. Ég á lítinn páfagauk sem ég er út af einhverjum ástæðum voðalega stoltur af. 4. Ég stefni að gráðu í sálfræði og heimspeki og tölvunarfræði og verð því bláfátækur þangað til ég er allavega 27 ára. 5. Ég er að fara að spila á íslandsmeistaramótinu í bandý á sunnudaginn. Ég veit reyndar ekkert hvernig þessi leikur virkar og ég er á báðum áttum um hvað það eigi að segja í þessu, en hverjum er ekki sama. Ég ætla ekki að klukka neinn, finnst það ekkert sniðugt og svo eru allir sem ég þekki löngu búnir að skrifa hvort sem er. þriðjudagur, september 13, 2005
Verðlaust land
Peningar vísuðu einu sinni í eitthvað raunverulegt, til dæmis var gull vinsælt viðmið og gaf þjóð þá ekki út meiri peninga heldur en hún átti andvirði af í gulli. Þetta er nú löngu úrelt fyrirbæri og peningar eru í raun ekki miðaðir við neitt nema eigið gengi, sem aftur er ekki miðað við neitt raunverulegt. Peningar eru því ekki til í alvörunni fyrir utan okkar samþykkt um hvað þeir séu, ekki frekar en umferðalög. Það er fyndið að hugsa út í það að þegar við fáum borgað fyrir störf okkar þá er vinnuveitandinn að færa til tölur sem sýna verðmæti sem eru ekki til nema sem tölur. Peningar væru líka verðlausir ef ekki væri fyrir það gildi sem við gefum þeim, sem er ósköp eðlilegt, í staðinn fyrir að skiptast á kjúklingum eða eitthvað því líku þá vísum við í verðmætin með prentuðum seðlum eða jafnvel rafrænu samþykki. Eina vandamálið er það að þessi peningar vísa í sjálfu sér ekki í nein verðmæti, ríkistrjórnin sem gefur út peningana ákveður hversu mikið skal gefa út og skal það vera í hlutfalli, þar sem verðmæti peningana er í hlutfalli við magn. En hvað myndi gerast ef að allur peningurinn á Íslandi myndi verða keyptur, svona bara upp á djókið, og einhver myndi vilja fá andvirði hans í einhverju raunverulegu? Ættum við að gefa viðkomandi alla bíla og sauðfé á landinu? Hvað er það sem þessi peningur vísar í? Ég er engu nær. Hvar eru hagfræðingarnir þegar maður þarfnast þeirra? laugardagur, september 10, 2005
Það þurfti einhver að segja það
Og hver betur til þess fallinn en Sigursteinn Másson? Það er verið að fara illa með greyið háskólanemana. Tekin nokkur góð dæmi úr sálfræðinni, þar er komið ófreskjulega fram við nemendur, en það er líka allt í lagi, við lærðum á fyrsta ári að við værum ekki fólk hvort sem er. Það tekur því ekkert að vera að breyta þessu, komast bara í gegn, sýna hörku. Ég er ekki mikið fyrir að kvarta of mikið [um hluti sem skipta máli -ritstj.], hvað þá breyta hlutunum, þeir eru bara eins og þeir eru, þannig hljóta þeir að hafa alltaf verið og þannig hef ég alltaf verið. En ég er orðin stór núna, ég ætla að vona að ég nenni að fara að taka mér stöðu bráðum því ég er ekkert sáttur. Kannski ég ætti að drífa mig út í stjórnmál, maður gæti jafnvel látið gott af sér leiða. Þá er bara að finna sér flokk sem er ekki gjörsamlega ónýtur...eða kannski stofna bara nýjan. Ekki allir með í því? Ég þarf nokkrar undirskriftir nefnilega. Kannski ég klári samt skólann fyrst. Nóg að gera. fimmtudagur, september 08, 2005
Svona er lífið víst
Það var slegið framan í mig eins og blautu handklæðu að hann Al Tyler er dáinn. Fáum sem hér lesa þykir þetta kannski fréttnæmt en það þykir mér og því syrgi ég hér opinberlega. Á þeim nótum hyggst ég ekki gefa nánari deili á umræddum manni annað en að hann var gull af því, sérvitur og bar frábært glott. Megi þú hvíla í friði, hvað svo sem það þýðir. miðvikudagur, september 07, 2005
Upphafning einræðunnar
Það var móða á speglinum eftir sturtuna hennar Telmu og það eina sem ég sá skýrt á honum voru baugarnir undir augunum. Ég er alltaf þreyttur, alltaf þegar ég sef of mikið, en í morgunn vaknaði ég eins og svo oft áður með óþægilegt sýrustig í maganum vegna alla þeirra hluta sem ég vissi að ég þurfti að gera í dag. Ætli mig dreymi áhyggjur á nóttunni? Hver hefði haldið að uppvask tæki svona mikinn tíma á hverjum degi? Ekki ég; uppþvottavélin heima er algjörlega nauðsynleg skil ég núna. Heima. Það er fjarlægt fyrirbæri, samt var ég þar í gær. Heima er einmanna lítill fugl og hrúgur af drasli sem ég hef safnað að mér seinustu áratugina. Ég á nóg í tvær búslóðir og hvorug þeirra kemst fyrir í nýju íbúðinni. Ég ætlaði að hringja eitthvert. laugardagur, september 03, 2005
Kominn tími
Það er kannski kominn tími á að maður fari að flytja að heiman. Nýja aðsetur mitt verður á Suðurgötunni. Það hefur sína kosti og ókosti, ég kem ekki tíund af húsgögnunum mínum fyrir í þessari blessuðu íbúð, er reyndar að flytja í um það bil fjórum sinnum minni vistarverur. Það er þó varla mikil raun fyrir mig í tilliti til þeirra sem hafa engan stað til að fara á. Þá er ég að tala um heimilisleysinga Íslands, sem sagt hann Bíbí, held það séu engir fleiri sem vert er að tala um. Ég veit satt að segja ekki hvað ég get gert við hann, ég get ekki haft hann, greyið. Því auglýsi ég eftir góðu heimili fyrir lítinn þriggja ára ástargauk með grænar, bláar og ferskjulitaðar fjaðrir, hræddur við allt sem hreyfist en samt algjör töffari og þarfnast athyglis. Honum finnst gott að sturta sig í baðherbergisvaskinum og fiskabúrinu, hann kann ekki að tala en getur þó lært það ef þolinmæði er fyrir hendi, hann skilur þó nokkur orð, þar á meðal "inn," "niður," "opna" og að sjálfsögðu "Bíbí." Ég hef reyndar vanrækt menntun hans óþarflega mikið en í því samhengi ber kannski að geta að hann er ekki handfóðraður og var frekar stressaður lítill fugl þegar ég fékk hann. Það er alltaf erfiðara að kenna óhandfóðruðum páfagaukum mannasiði þar sem þeir vita að þeir eru ekki menn en ég get nú samt fullyrt að hann Bíbí er ekki illa upp alinn, allavega ekki mjög. ![]() Svo ef einhver hefur þörf fyrir lítinn fugl sem nartar í hálsinn þinn, lendir á öxlinni þinni þegar þá átt síst von á því þar sem þú hélst að þú værir búin að loka búrinu nógu vel en fuglinn fann út hvernig átti að færa hárklemmuna þá endilega hafðu samband. Það næst í mig á karljohann@hotmail.com og í síma 694-4686. |
Andjörð
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|