|
þriðjudagur, maí 31, 2005
DAUÐ
Æ, ég er nú búin að missa allan þrótt til að vera að þessu blogg rugli, það er komið sumar, komið ykkur út og njótið góða veðursins, lesið bók, drekkið ykkur heimsk (mæli reyndar ekki með seinustu tveimur) eða hvað svo sem þið fílið. Ekki vera að sóa tímanum ykkar á netinu! mánudagur, maí 30, 2005
Aldrei fór ég vestur Núna nýlega bættust Vestfirðir við þá landshluta sem ég hef heimsótt. Þá eru þeir allir komnir og ég get með góðri samvisku flutt út af Íslandi. En það er ekki að fara að gerast bráðum svo engar áhyggjur. þriðjudagur, maí 24, 2005
Ungfrú hvað?! Mér er alveg sama um fegurðarsamkeppnir, fólkið sem tekur þátt í þeim er flest af sama toga og út af einhverjum ástæðum virðist magnið af aðlaðandi kvenfólki í þessum keppnum fara minnkandi ár frá ári. Ég veit ekki alveg hvað þessar keppnir eiga að tákna, hvort sigurvegari Ungfrú Ísland eigi að vera fallegasta kona landsins eða eitthvað því líkt, en satt að segja vildi ég óska þess að þeir hættu að kalla þetta Ungfrú Ísland því ef þetta er fegursta fljóð landsins þá er ég fluttur til Englands. Í beinu framhaldi af þessu þá finn ég mig knúin til að minnast á lögregluna. Ég var að keyra heim eftir vinnu áðan og fyrir framan mig var lögreglubíll. Ég var fyrir aftan hann í um það bil fimmtán mínutur og allan tímann var hann með rúðuþurrkuna á afturrúðunni - í glampandi sólskini. Ég vil ekki vera neikvæður en ég er það og valdhafar þessa lands eru bjánar. Voðalega er ég eitthvað pirraður þessa dagana. þriðjudagur, maí 17, 2005
Ísland, fagra Ísland Þá er ég farin að skoða fegurð eyjunnar. Það verður byrjað á Hornarfirði þar sem sungið verður fyrir heimamenn og aðkomandi, því næst farið á Hérað, þar sem ég vonast til að ná að heimsækja fagran skóg, sem ég hef ekki komið til of lengi, sem ber að geyma rjóður með bústað í. Loks verður höfuðborg norðurlands tekin fyrir með tilheyrandi viðkomu í bláu lónu í Mývatnssveit. Þar líkur þessu þó ekki því helgina eftir viku á ég pantað flug til Vestfjarða, sem hingað til er eini fjölsótti staðurinn á landinu sem ég hef ekki heimsótt. Þá loks þegar ég hef kynnt mér land mitt af einhverju viti get ég kannski skoðað hin stóra heim með góðri samvisku. Óskið mér góðrar ferðar. mánudagur, maí 16, 2005
Urður Ósk Þið lásuð það fyrst hér, Urður Ósk Árnadóttir fæddist í heiminn klukkan 11:27 mánudaginn 16. maí, í dag er hún 16 merkur og 52 cm. Til hamingju allir þeir sem það varðar, þá sérstaklega Árni og Drífa. fimmtudagur, maí 12, 2005
Bankinn er opinn Ég á von á að lítið barn líti dagsins ljós eftir örfáa daga (nema það hafi að sjálfsögðu þegar gerst, fólk segir mér aldrei neitt og það átti að koma 10.) og vil ég því nota tækifærið og óska Drífu til hamingju með að vera komin með blogg, sú staðreynd hjálpar mér að ná fram symmetríu hér á síðunni. Munið samt að segja mér þegar eitthvað gerist, mér leiðist að vera alltaf seinastur að frétta svona hluti, mamma og pabbi eru úti í Rúanda og þau munu ábyggilega vita þetta á undan mér, sem er allt í lagi svo lengi sem ég er innan við sama hálftíma og þau. Ég er samt ennþá að veðja á 17. eða 18., góðir dagar. miðvikudagur, maí 11, 2005
Þræll hreiðrunareðlisins Hvers konar húsgögn skilgreina mig sem manneskju? Mig langar í svona rúmgafl. Mig langar í svona eða svona hátalara. Ég er að taka eftir því meira og meira að mig langar í hluti, mig langar alltaf í hluti en nýlega þá finnst mér ég gera lítið annað en að langa í hluti. Sumt af þessum hlutum kaupi ég mér, reyni helst að finna þá hluti sem höfða til mín sem manneskju, ef ekki þá allavega fallega miðað við verð. Það er ekki eins og ég eigi efni í alla þessa hluti, það er ekki eins og ég eigi íbúð. Samt geng ég ekki svo langt að kaupa nýjan bíl þegar mér dettur, þó ég myndi það ef ég mögulega gæti. Tölvan mín er gott dæmi um hégóma minn. Falleg er hún þó og það gerir mig ánægðan, undarlega nokk. Svo ég spyr, er rangt að vilja hluti sem maður þarf ekki? Er ég bara fórnarlamb þessa nútíma samfélags? Er ég hégómagjarn? Er rangt að vilja hafa fallega hluti í kringum sig? Er rangt að eiga hluti sem aðrir gætu aldrei átt? Á ég að njóta stöðu minnar í heiminum eða friða samvisku mína með því að leyfa hjartanu mínu að blæða fyrir aðra líka? Alveg er mér sama, klukkan er margt og ég ætti að vera að gera eitthvað gagnlegt við tímann minn. Þetta er nóg til að gera fólk veikt á geði. Ekki mig þó, það væri bara framför í mínu tilfelli. þriðjudagur, maí 03, 2005
Eru krakkar alveg hættir að stela hjólum? Það er fjallahjól búið að sitja óhreyft fyrir utan húsið mitt núna í að minnsta kosti ár ef ekki tvö. Svo ber ekki að skilja að ég vilji að hjólinu verði stolið, ég áttaði mig á því einfaldlega að hjólum var títt stolið í gamla daga þegar maður var ungur sjálfur. Greyið hann Bíbí Ég er hættur að leyfa fuglinum að fara mikið út úr búrinu sínu lengur. Á tímabili eftir að hann hafði lært að opna allar útgönguleiðir og annað slíkt á búrinu sínu þá leyfði ég honum að vera úti eins mikið og hann vildi. Þetta þýddi í sjálfsögðu að það var mikill fuglaúrgangur á þremur stöðum í íbúðinni; í gluggakistunni, í stiganum og á fiskabúrinu. Þetta sætti ég mig við þó ég þurfti að þrífa oftar, sem er ekki erfitt þegar viðmiðið er aldrei. En svo fór hann að vera aðeins of heimakær fyrir minn smekk. Ég þurfti ekki lengur að gefa honum að borða því hann opnaði bara matardallinn og fékk sér sjálfur og vatnið fékk hann mest úr blómavasanum og hjá fiskunum. Eitthvað sem ég var ekki sáttur við svo ég lokaði fiskabúrinu með bók, sem var reyndar ekki of gott fyrir fiskanna þar sem mikill skortur varð á uppgufun. Mér finnst ágætt að honum þyki gaman af Sunnu en lyktin af honum er ekki góð eftir böð í vatninu hennar. Þessa daganna fær hann því ekki að vera mikið úti. Þetta er þó allt í lagi því við erum komnir í sátt, ef hann vill eitthvað þá þarf hann bara að biðja um það og ef ég vil eitthvað þá öskra ég bara á hann og slæ til hans. Góð saga. mánudagur, maí 02, 2005
Ó jæja "Ég tók ekki pilluna í morgunn sem lætur mig vera ekki æstan" sagði hann við vin sinn og hljóp svo út. Það var eitt sæti laust við borðið í kaffinu, það var ein lítil stelpa á sjúkrahúsi með illa brotinn fót, úps. Ég fékk sting í magann þegar pabbi hennar hreyfði hendurnar til að sýna mér hvernig beinið fór, hann hefði mátt sleppa hljóðinu. Eftir það var spurninginn "kom hún í skólann í dag" frekar heimskuleg. Ég þarf að nota linsur núna þar sem ég er endanlega búin að eyðileggja gleraugnaumgjörðina mína. Þarf nú reyndar ekki mikið að gera við en fyrsta skrefið er að fara með þau í viðgerð. Vandamálið er að ég lít frekar asnalega út með skegg ef ég er ekki með gleraugu, ekki jafn gáfulegur kannski, ef ég gæti nokkurn tímann talist það. Kannski ég raki bara allt af nema yfirvaraskeggið. Hugðarefni. |
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|