|
föstudagur, apríl 29, 2005
Ást í Draumalandi Tvö sex ára voru að byrja saman í dag, það var óheyrilega sætt, vona að það endist. Þegar þau loksins mega giftast þá hafa þau verið saman í tólf ár. Lífið verður ekkert mikið sætari. Síðan komu þau tvö hlaupandi upp að mér, bæði með uppbrett framhliðina á peysunni sinni ífullar litlum steinum og tjáðu mér á yfirvegaðan hátt að ein stelpan hefði dottið niður úr kastalanum. Ég gekk rólega upp að henni á meðan hún öskraði að hún væri fótbrotin, en þekkjandi hana átti ég ekki von á miklu. Þegar nær var komið þá sá ég að blóðið lak nú reyndar af andlitinu hennar og eitthvað var henni illt í fætinum. Það var þá hringt á sjúkrabíl og á meðan þreif ég mest af blóðinu framan úr henni. "Dey ég?" spurði hún í örvæntingu sinni og ég sagðist ekki vita það, en hugsanlega gerði hún það já og meira að segja mjög líklega. Samt minnir mig að önnur, íhugaðari orð hafi verið notuð, til dæmis "nei, þú deyrð ekki, þú verður bara smá sár." Enda sýndist mér hún í mesta lagi brákuð, hún átti ekki einu sinni fullorðinstennur til að brjóta. Ég held samt að það verði allt í lagi með hana og að hún komi til með að skemmta sér vel í afmæisveislunni sinni á morgunn, þetta verður þá bara skemmtileg saga til að segja hinum krökkunum, eða ykkur. Ætli þagnareiðurinn nái yfir þetta? sunnudagur, apríl 24, 2005
Í dag Er barnadagurinn (children's day) á Íslandi. Þetta veit ég vegna þess að ég var að fá nýja Fantòmas diskinn og hann er settur upp sem dagatal. Þetta voru aldeilis nytsamar upplýsingar, ekki vissi ég að í dag væri barnadagur á Íslandi, en þetta vissi Mike Patton, megi hann vera blessaður, kannski af nýja páfanum. Eins og fólk hafi ekkert betra að gera En ef þið hafið ekkert betra að gera og þykist þekkja mig þá er eitt svona lummó próf hérna sem spyr ykkur spjörunum úr... Endilega sjáið hversu mikið ég nenni að tala við ykkur fimmtudagur, apríl 14, 2005
Það líða ár og öld Tíminn er alltaf jafn fljótur á sér, áður en maður veit af er komið vor, svo sumar og svo aftur vetur. En fyrr en varir er hann liðinn. Það er engin ástæða til að ætla að árstíðirnar bíði eftir neinum manni svo skynsamlegast væri að gera það besta úr þeim tíma sem maður á eftir. Ef ég þekki sjálfan mig rétt fer tíminn mest þó í að eyða honum umfram inneign og verður því tími fenginn að láni á endanum, yfidráttur sem ég get ekki alltaf borgað og verð því að fá greiðslufrestun. Ég er ekkert svo slæmur með fjármál, en ef ég ætti greiðslukort á tíma þá myndi ég aldrei geta borgað fyrstu tvo mánuðina. Það eru tónleikar á sunnudaginn, fyrir þá sem hafa áhuga á kórtónlist eða eitthvað því líku. Þeir verða í Neskirkju klukkan fimm og verða seldar kökur og kaffi okkur til styrktar. Við þurfum bjórpening. Það eru tónleikar á mánudaginn, fyrir þá sem hafa áhuga á rokktónlist eða einhverju því líku. Isis eru að fara að spila. Ég hlakka til, best að hafa með sér pening, mig vantar föt. "Það vantar eitthvað. Ég ætla að athuga með það og verð svo í sambandi." Þolinmæði og hvatvísi útiloka ekki alltaf hvert annað. sunnudagur, apríl 03, 2005
Kvart, kvart og kvein Ég veit að það er komið vor þegar ég vakna á morgnanna með stífluð augu og nef. Ég þjáist sem sagt af einhverskonar gróðurofnæmi, eitthvað sem maður verður að læra að lifa með býst ég við. Einn af kostum vetrarins er að ég þarf ekki að þvo mér í framan áður en ég sé eitthvað á morgnanna. Kannski ég flytji í hús án garðs. Kannski ég hætti að væla og fái mér morgunnmat. föstudagur, apríl 01, 2005
|
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|