sunnudagur, janúar 30, 2005
 
Spurningin

sem ég vil spyrja ykkur er þessi: er Árni bróðir minn heitur eða ekki?

Það hlaut að koma að því, heimurinn er orðin of auðveldur og vesturlandabúar hafa of mikinn frítíma. Nú er það bara tímaspursmál hvenær við leggjum niður veraldarvefinn, það er einfaldlega allt of margir bjánar í þessum heimi komnir með málgagn.

Annars þökkum við Adda fyrir þessa ánægjulegu mynd af bróðuímynd minni, afskaplega gefandi bros á drengnum. 
föstudagur, janúar 28, 2005
 
Úff...

Tala við þig seinna 
þriðjudagur, janúar 25, 2005
 
Dagga batreb ino

Badada ba gret imufenisi unka hugveto kifloseka i flavklava endanbo. Jsofr tjamla rdi frovedmngu ilitor. Krifu estin mnora fe ki rmni. 
sunnudagur, janúar 23, 2005
 
Brengluð kímnigáfa

Ég verð alltaf forvitinn aftur um sálfræði kímnigáfu þar sem ég hlæ endurtekið að þessu hérna
föstudagur, janúar 21, 2005
 
Alið metnaðarleysi

Fékk einingar mínar metnar til útskriftar áðan, þar var mér tjáð að ég væri með of margar einingar og gæti ekki fengið þær metnar. Eftir það horfði ég á á meðan hver áfangi á fætur öðrum var dæmdur ómerkur. Ég stóð og hugsaði með mér að þarna færi mikil vinna til einskis, á hátt sem var áþreifanlegri en maður er vanur. Samt var mér alveg sama.

Mér var alveg sama vegna þess að núna ætla ég að útskrifast, eftir alla þessa litlu vinnu sem ég lagði í þetta þá ætla ég að útskrifast og ég get stoltur sagt hversu auðvelt það var að fá gráðu frá þessari virtu stofnun.

En það er í febrúar, nú er janúar og ég þarf að klára ritgerðina mína. 
miðvikudagur, janúar 19, 2005
 
Skín og skúrir

Suma daga vaknar maður á undan sólinni, aðra daga virðist sólin ekki ætla á fætur. Þetta er ekki myndlíking, það var í alvörunni enginn sól í dag, algört rugl.

Mér finnst ég þurfa að segja nokkur orð um helgina mína, hún var vægast sagt áhugaverð og þar sem ég hef ekkert skrifað lengi þá er það tilvalið umfjöllunarefni.

Ég veit ekki hvað ég ýtti mörgum bílum þessa helgi en þeir voru margir, þurfti meira að segja að hringja í traktor til að ná einum út úr skurði þó við vorum með jeppa og kaðal. Reyndar gerðist þessi jeppi svo frægur að taka einn hring á hlið sama dag.

Ýmislegt annað áhugavert gerðist, svo áhugavert að við komumst loksins á eina af þessum íslensku sorpsíðum, flott mynd reyndar. Það var mikið drukkið þessa helgi, meira að segja af mér, en í orðum Danna, háttvirts Drykkjustjóra, "ef þið haldið að þið þurfið eina kippu, takið tvær." En þess má geta að kortinu hans var synjað í ríkinu og hann kom bara með eina, en það var ekki vandamál frekar en fyrri daginn.

Við fengum þennan fína bústað út af fyrir okkur, á meðan allir aðrir sváfu á gólfinu hjá hvor öðrum með eitt baðherbergi fyrir fimmtíu manns. Ég skil ekki alveg svona kommúnustemmningu, kapitalistinn ég.

Ég fór úr bænum um helgina, þar var dýrðarveður á laugardag, úr bænum. Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel og er farin að hafa áhyggjur af sambandi mínu við Háskólakórinn, ég held ég hætti aldrei í honum. Þegar ég gifti mig þá mun ég fá kórinn til að syngja og þegar ég dey verður hann þar líka, syngjandi útfararsálma, eins og venjulega.

Ég hef lítið slæmt um þetta fólk að segja, snillingar upp til hópa. Og þá ætla ég að formlega þakka fyrir helgina, hún var súrrealísk. 
fimmtudagur, janúar 13, 2005
 
Ó hve fögur er vor...

Fallegt er veðrið úti þessa daganna, mér líður eins og vorið sé að koma og blómin sé í þann mund að blómstra. En svo stíg ég út í kuldann, þennan annars yndislega kulda sem hvorki kannast við vind né úrkomu, svoleiðis vil ég hafa það. Á næstu dögum hlýnar veðrið og allt verður ljótt.

En þá er ég búin að tala um veðrið í dag.

Uhm... skoðið þetta
föstudagur, janúar 07, 2005
 

 
þriðjudagur, janúar 04, 2005
 
Annáll

Árið 2004 var á margan hátt gott ár fyrir mig.

Mikið af góðum hljómsveitum glöddu okkur með komu sinni þetta árið, má þar nefna Converge, sem spiluðu hér stórgóða tónleika í janúar, Shai Hulud og Fantomas, en listinn er þó mun lengri.

Vorið var skólastarfi að bráð og má þar meðal annars nefna útkomu uppskriftabókarinnar Naglasúpan, riti sálfræðinema SÁLU og höfnun á inngöngu mína í Listaháskólann eftir hálfgerða tilraun. Ekki það að ég hafi ekki líka reynt að vera duglegur í því námi sem stóð til að ég tæki.

Í maí fór ég með hinum eina sanna Háskólakór til Slóveníu og verður sú ferð að teljast til þeirra betri sem ég hef farið í, þó ófáar.*

Sumarið var fallegt og ég fékk að ráðskast með hóp af unglingum og hef ég ekkert slæmt um það eða þau að segja, skemmtileg vinna þar á ferð. Í lok sumars fékk hópurinn minn verðlaun fyrir að vera fyrirmyndarhópur, mér til ánægju.

Í byrjun júlí slitnaði uppúr sambandi ríkisstjórnar og almennings þegar ég og Kolla hættum saman eftir 6 ára samband.

Hljómsveitarsamstarfið fór ofan görðum og er nú neðan, nokkrum metrum, grafið lifandi. Spilað var á nokkrum tónleikum og æfingarnar voru drjúgar á tímabilum. Um haustið lánaðist okkur að fá súkkulaðihúðað æfingarhúsnæði en við vorum því miður í megrun svo það var lítið borðað af því.

Eftir góðan árangur í 5 sumarprófum var haustinu samt ekki fagnað með útskrift heldur áframgangandi skólagöngu og skemmti ég mér stórvel í skólanum þetta haustið, allavega kom ég ekki nægu í verk. Ritgerðin kemur bráðum, ef eitthvað gengur eftir.

Ég tók við embætti varaformanns Háskólakórsins um haustið og ákvað að fylgja eftir skriftum með þáttöku í ritstjórn Stúdentablaðsins, enda taldi ég mig hafa góðan frítíma vegna lítilla anna í skólanum, það þarf kannski ekki að taka það fram en ég hafði rangt fyrir mér hvað varðar annir.

Ég þyngdist um 20 kíló á hálfu ári, viljandi. Hámarkinu var náð í Október þegar ég var orðin 94 kíló og var því ákveðið að hætta tilraun og reyna að létta sig niður í kjörþyngd, sem hefur tekist svipað vel og fitunin upp í hana.

Hvað varðar líkamsrækt þá fór dágóður hluti af árinu í misheppnaðir tilraunir til þess að byrja í slíku, en á haustmánuðum þá létti mér ögn á samviskunni með tilkomu tíma í íþróttahúsi háskólans á laugardögum þar sem bandí er spilað af hluta Háskólakórsins og einnig lítillar klifurmúsar sem dróg mig með sér að príla innandyra, en hvort tveggja byggir ekki einugis líkama og sál heldur er einnig mjög ánægjulegt, eitthvað sem líkamsrækt ætti alltaf að vera.

Jólin komu og fóru, eða eru á leiðinni, og tel ég næsta ár muni án nokkurs vafa vera það besta hingað til í minni sögu, framtíðin er björt, segi ég.


* Topp tíu utanlandsferðir: Slóvenía '04, Svíþjóð '97, Dynamo '99, Holland og Þýskaland '91, Interrail '98, Bandaríkin '94, Reading '02, Köben - Amsterdam - París - London - Reading '00, Barcelona '00. Á endanum er ég í raun búin að telja upp allar þær utanlandsferðir sem ég hef farið í síðan ég var 10 ára, en mér finnst reyndar mjög gaman að ferðast og allar þær ferðir sem ég hef farið í eru góðar.
 
 




Það sem er mitt::
Andhiminn
Andjörð
Senda mér e-ð
Dálkurinn á dordingull.com
Greinar á Vantrú
Betrefi á rokk.is
Halda upp á mig!


Andjörð:

Aðrar lífverur og þeirra heimasíður:
Árni bróðir
Kolbrún Ýr
Sigga frænka
Harpa
Guðný Lára
Eikey
Hildur
Siggi Pönk
Gunni frændi
Mæja
Unnur
Elfa Dröfn
Einhver gaur
Óli Gneisti
Telma
Hlín
Ásdís
Hitt kórfólkið

Aðrar vefsíður:
7½ teiknimyndir
Dordingull.com
Háskólakórinn
Stúdentablaðið
A N I M A
Vantrú
Andspyrna
Rokk.is

Eldri skrif:
Janúar (2005)
Desember (2004)
Nóvember (2004)
Október (2004)
September (2004)
Ágúst (2004)
Júlí (2004)
Júní (2004)
Maí (2004)
Apríl (2004)
Mars (2004)
Febrúar (2004)
Janúar (2004)
Desember (2003)
Nóvember (2003)
Október (2003)

Site Meter gestir síðan 4. nóvember 2003


Powered by Blogger