![]() |
fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Brjótandi fréttir Rétt í þessu var okkur að berast niðurstaða frá dómnefnd í málinu um "kynþokkafyllsta mann ársins," en henni verður frestað um óákveðin tíma þar sem dómnefnd lýsti sig vanhæfa til að dæma í slíkri keppni vegna hlutdrægni sinnar. Þrátt fyrir það að einungis er um frestun að ræða þá vildi dómnefnd jafnframt taka það fram í niðurstöðu sinni að vonin er að enginn maður verður kynþokkafyllri en hver annar þetta árið og vinna því allir. þriðjudagur, nóvember 23, 2004
ha? Þeir sem voru að velta fyrir sér líðan Sunnu, gullfisksins míns, verða ánægðir að heyra að hún er mjög hress og hún og bíbí eru góðir vinir, ég ákvað að verða mér úti um upplýsingar um gullfiska og reyna að halda þessum lifandi og við heilsa í einhvern tíma. En fyrst öllum er sama um það þá verðið þið án efa glöð að heyra að bíbí varð ekki fyrir neinum skaða frá reyk í nótt. Ég er viss um að bænir ykkar beindust margar að þessu litla græna fiðruðuðu fyrirbæri áður en þið lögðust í svefn í nótt. Hann er við góða heilsu og sprækur eins og alltaf. Einu sinni hafði ég eitthvað að segja. Andvarp. mánudagur, nóvember 22, 2004
Kynþokkafyllsti maður ársins Hér á Andhiminn™ fer fram kosning á kynþokkafyllsta manni ársins. Þetta er eitt af þeim mörgu nýjungum sem teknar verða upp hér á næstu vikum. Tilnefningar fara fram hér á athugasemdakerfinu. föstudagur, nóvember 19, 2004
Úff - varúð: ömurleg færsla Held mér hafi aldrei fundist leiðin heim jafn löng áður, ekki einu sinni þá annasama daga sem umferðin er svo mikil að þessi 8 kílómetra akstur taki nálægt klukkutíma. Ekki hjálpaði að snjórinn hafði skilið eftir sig ójafna vegi og bíllinn og innihald hans hristist duglega. Mesta huggunin við að vera með gubbupest er sú að maður veit að slíkt endist aldrei lengur en dag eða svo. En á meðan breytist forgangsröðunin dálítið, klósettskálinn verður náin vinur og hin dýrlegi matur sem maður slefar yfir í auglýsingahléum sjónvarpsins verður orsök ógleðitilfinningar. Ég get rétt ímyndað mér hvernig það er að vera alvarlega veikur þannig að hver dagur er svona, maður verður fljótt vanur uppkastinu þó það sé aldrei sársaukalaust, þvert á móti getur það verið mjög sársaukafullt, sérstaklega eftir að ekkert er eftir til að kasta upp. En ég er ekki einn til að vorkenna mér of mikið fyrir að vera veikur, ég er bara ánægður að þetta var einungis gubbupest og hún er búin núna, annars kæmist ég kannski ekki í afmæli mitt á morgunn, það væri virkilega ömurlegt! miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Hinar myrku aldir Var að velta því fyrir mér hvernig fólk komst eiginlega af fyrir tíma gsm síma, internetsins og því líku. Þetta hljóta að hafa verið erfiðir tímar, ég get bara ekki ímyndað mér þá erfiðleika sem hljóta að hafa fylgt þessu, en á sama tíma er áreiðanlegt að fólk hefur verið afslappaðri því ekki var möguleiki á öðru en að hlutirnir tækju tíma, svona eins og áður en bílar komu til sögunnar, hvenær sem það var eiginlega. mánudagur, nóvember 08, 2004
Ég drap þá! Kom að fiskunum mínum þar sem þeir flutu hreyfingarlausir eins og í verstu stríðsmynd. Allir þrír dauðir, ég trúði þessu ekki. Mér var næst litið á Sunnu þar sem hún lá á hlið með andlitið sitt ofan í andliti Móra, það var næstum dramatískt, svo kom það, hreyfing. Sunna var fljótlega sett í gjörgæslu/bjórglas á meðan hinir tveir voru fljótlega losaðir, enda leiðist mér langar athafnir. En talandi um langar athafnir þá fór ég í jarðarför í dag, dauðinn er alltaf minnst fyndinn þegar hann gerist fyrir ungt fólk, afsakið kaldhæðnina. Það er mjög átakanlegt þegar einhver er tekin í blóma lífsins, enda var ekki þurrt kvenmannsauga í húsinu, karlmenn eru aftur á móti harðari af sér, eina sem skiptir okkur máli er bjór og fótbolti. Sunna er kominn aftur í kúluna sína, sem er núna hrein og fín og ég ætla að passa mig að gefa fiskunum ekki of mikið að borða. Ég er engin dýralæknir en miðað við ástand maga þeirra þá held ég að ofát sé orsök dauða þeirra. Blessuð sé minning Móra, Lególas og jafnvel Sæunnar, en samkvæmt prestinum þá mun hún rísa á ný og hljóta eilíft líf. Svo fremri sem hún trúði á Jésú og/eða óttaðist guð kristinna. miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Sefur þetta fólk vel á nóttinni? Kannski það geri það ekki en þekki bara ekki annað. Ég ætla að eyða gestabókinni minni út. Tvær góðar ástæður eru fyrir þessu, fyrst þá eru alltaf einhverjar fáránlegar klámauglýsingar að koma sem ég þarf að eyða út, mannkynið getur verið svo undarlegt, og í öðru lagi er komið nákvæmlega upp á dag eitt ár síðan einhver skrifaði seinast í hana. Annars er trú mín á mannkynið ekki að blómstra þessa daganna, þá sérstaklega ekki bandaríkjamenn, þvílíkt fáfræði, þvílíkir fáráðlingar, þetta fólk á skilið að vera leitt áfram, eða tilbaka, af bjána. En hvers þurfum við hin að gjalda? mánudagur, nóvember 01, 2004
|
Það sem er mitt::
Aðrar lífverur og þeirra heimasíður:
Aðrar vefsíður:
Eldri skrif:
|