fimmtudagur, september 30, 2004
 
Stoltur segi ég...

"þetta er hún litla frænka mín" Algjört spons, hvað sem það þýðir. 
 
Skyr er gott

Ég verð nú að viðurkenna að mér þykir skyr.is afar bragðgott og vel þegin viðbót við íslenskan matvælamarkað.

Þeir sem hafa þess kost skulu endilega fletta upp á blaðsíðu 35 í Fréttablaði dagsins í dag þar sem fjallað er um yfirvofandi aðgerðir trúarandstöðu, á skýrari máta en ég er fær um hér. 
 
Nískur, og stoltur af því?

Það er ótrúlega algengt að maður heyri gagnrýni frá fólki á það borð að þetta séu nú ekki nema tveir bjórar sem þetta kostar, eða þá þetta sé ekki nema á lengd við bíómynd og kosti minna. Þetta eru allt fín viðmið ef þú ert að höfða til hins almenna íslenska ungmanns væntanlega, en þetta fer lítillega í mig. Mér finnst bjórinn hér allt of dýr og fer heldur ekki í bíó, enda finnst mér fáránleiki þess að borga í það minnsta 800 krónur til að sjá bíómynd sem gæti verið ömurleg verðugt þess að gera bíóferðir að einu-sinni-á-ári-kannski hlut.

Getum við ekki bara sagt fólki að þetta sé ekki mikið á hátt sem ekki gerir lítið úr því og reynir viljandi eða óviljandi að koma inn samviskubiti hjá því? Á hátt sem segir ekki "Gerðu eitthvað gott því mestan tíma ársins ertu ömurlegt eintak"? Ég vill ekki heyra "þú skuldar mér hvort-eð-er fyrir skiptið sem ég gaf þér kók" þegar ég ákveð að vera góður við einhvern og gefa honum ís, kemur þetta málinu við? Hver veit. 
mánudagur, september 27, 2004
 
Komið eitthvað ákveðið þema á þessa síðu?

Las einn frekar góðan brandara áðan sem hitti nokkuð nálægt hverfinu mínu.

Hversu marga karlmenn þarf til að skipta um ljósaperu?
Engan, þeir sitja bara í myrkrinu og kvarta.


Þannig er að ég hef frábæra aðlögunarhæfni, í staðinn fyrir að færa til dæmis eitthvað í burtu úr gönguveginum þá venst ég bara því að þetta er þarna, þetta er ekkert fyrir mér en eftir nokkrar vikur þegar ég í einhverri hormónageðveiki átta mig á því að það er ekkert mál að færa hlutinn, sem gæti til dæmis verið ryksuga sem á ekki einu sinni að vera þarna svo ég taki nú ómerkilegt en skiljanlegt dæmi, þá er ákveðin upplifun í því að sjá hversu auðvelt þetta var og óþarfa áhrifin sem þetta hafði á mitt daglega líf. Oft þarf ekki að gera mikið til að umvelta lífi sínu. 
 
Veruleikinn okkar enn og aftur: Afleiðingar ofsaveðurs í ameríkunum eru til dæmis þær að...

Þúsundir manna hafa látist á Haítí í góða veðrinu á Íslandi en forsíðu Morgunblaðsins finnst áhugaverðari að miljónir manna séu án rafmagns í Flórida. Þetta er hræðilegt, ég hef ekki nægt magn af tilfinningum til að ákveða hvað mér á að vera sama um. 
 
Ein lítill, tveir litlir, þrír litlir fiskar...

Þurfti að þrífa nýja fiskabúrið mitt núna áðan. Þetta væri ekki frásögum færandi nema fyrir þær sakir að ég keypti það í seinustu viku. Svo virðist sem nýji maturinn hafi ekki farið nógu vel í ryksuguna mína. Þannig að staðan er þannig að Hoover er ekki lengur á meðal vor. Ég efast ekki um að Sunna, Móri og Legó komist yfir þennan missi, enda af annarri ætt, gullfiskus generus ættinni, en ég er ekki viss um að glerið muni haldi sig jafn vel. 
 
Við höfum ekki efni á jeppunum okkar og er það miður

Finnst mér nú fyndið að minnast örlítið á yfirþyrmandi kennaraverkfall. Grunnskólakennarar eru áhugaverð afbrigði, virðingarverð í sjálfu sér en að því er virðist ekki nógu merkileg flest til að geta fengið sér betri starf, þó eru nokkrar góðar undantekningar sem eru hinir fáu og góðu sem hafa einlægan áhuga á því að kenna börnum og jafnvel gera heiminn að betri stað.

En hvað eða hvernig sem þeim líður þá sýnist mér sem svo að yfirmenn og skipuleggjundur þessa óhentuga verkfalls séu eitthvað að setja stétt sína eins og hún ber fyrir í dag á aðeins of háan stall. Þetta sést sérstaklega vel þegar skoðuð eru nokkrir hlutir sem þeir telja "verkfallsbrot", þar á meðal að gæta barnanna á skipulegan hátt og þá sérstaklega að afhenda nemendum ekki námsbækur sínar, þær sömu og eru greiddar með launum skattgreiðenda með það fyrir stafni að veita börnum þeirra hina ýmsu grundvallarþekkingu sem gæti nýst þeim í framtíðinni. Það sem kennarar virðast helst vilja gera er að láta þetta verkfall bitna eins mikið á börnunum og öllum þeim nánum og hægt er til þess að heimurinn sjái nú hversu merkilegir og mikilvægir þau í raun eru.

Án þess að ætla neina óvirðingu fyrir kennarastéttinni þá ætla ég lýsa því yfir að kennarar eru einfaldlega ekki eins mikilvægir og þessir blessuðu forsvarsmenn þeirra vilja halda. Við komumst af án ykkar, sættið ykkur við launin ykkar eða finnið ykkur aðra vinnu. Að sjálfsögðu eiga þeir skilið mannsæmandi laun en svo virðist sem þetta hugtak sé notað aðeins of frjálslega ef laun kennara eru ekki mannsæmandi, nema að sjálfsvirðing fólks sé í engum tengslum við veruleikann, eða þá, og það sem ég hallast frekar að, að veruleikinn sem við búum í í dag sé tilbúin og brenglaður. Peningar eru ekki allt, það er eitthvað sem kennarar þurfa greinilega að læra. Og þegar þau eru búin að ná því mega þau endilega útskýra það fyrir börnunum, án þess að hlægja. 
sunnudagur, september 26, 2004
 
Fallegur dagur

Í dag var rosalega fallegur dagur og vel til þess fallinn að innbyrða náttúru landsins okkar. Frá bjartri verönd í Úthlíð var haldið að Geysi þar sem hiti hefur áhugaverð áhrif á vökva, ýmist til að skjóta honum uppúr jörðinni eða lita hann á hátt sem erfitt er að lýsa án viðeigandi reynslu. Svo var Gullfossinn andaður að sér með vangaveltur um hugsanleg örlög þess sem væri svo óheppinn að lenda ofan í hinum magnaða þrýsting vatnsins.

Ekki var aksturinn heim af verri endanum, margar fallegar myndir á leiðinni sem heimtuðu athygli hins þreytta ökumanns. Það er einmitt á svona dögum sem maður fær skýra löngun til að syngja hátt ,,Hver á sér fegra föðurland" og undarlega eftirsjá vegna myndavélarinnar sem ekki komst með í ferðina, þó svo að ég efast svolítið um að myndavélin hefði fyllilega náð að fanga þessa ljóðrænu dýrð.

Þetta sést kannski óskýrast af því að ég tók nokkrar myndir á símanum mínum sem enduðu að sjálfsögðu hér
fimmtudagur, september 23, 2004
 
Myndir og meiri myndir

Tók mig til og tók til í símanum mínum. Henti út fullt af myndum og sendi þær sem ég vildi eiga á Andjörð
þriðjudagur, september 21, 2004
 
Stór dagur

Mig langar að nota tækifærið og óska henni móður minni innilega til hamingju með fimmtugs afmælið sitt á þessum alþjóðlega degi friðar að því er virðist og þakka henni Siggu fyrir allt saman, þið eruð báðar topps. 
sunnudagur, september 19, 2004
 
Ljóskurnar

Ljóska grunar kærasta sinn um að halda fram hjá sér og í reiði sinni fer hún út í búð að kaupa byssu (þetta er sko í Bandaríkjunum). Hún heldur svo heim þegar hún átti að vera í vinnunni og sér kærasta sinn umvafinn brúnhærðri stelpu. Hún grípur niður í veskið sitt og dregur upp byssuna, en í þessu öllu saman verður hún gífurlega sorgmædd og snýr byssunni að höfðinu sínu. Kærastinn hennar öskrar á hana að gera þetta ekki. Ljóskan öskrar til baka "Þegiðu, þú ert næstur!" 
 
Vísindamenn virðast ekki hafa nóg að gera

Vísindamenn eru búnir að komast að því að það eru kvenkyns hormón í bjór. Rannsókn var framkvæmd á 100 karlmönnum. Þátttankendum voru gefnir 6 lítrar af bjór til neyslu á 3 klukkutímum. Niðurstöður leiddu í ljós að allir þátttakendur hættu að tala skynsamlega og gátu ekki lengur keyrt bíl. 
 
Fyndið?

Sankti Pétur situr við gullna hliðið að bíða eftir að fólk komi upp þegar hann sér Jesús rölta hjá. Pétur kallar til hans og spyr hvort hann sé ekki til í að gæti hliðsins í smá stund á meðan Pétur skreppi aðeins frá.

"Ekkert mál" svaraði Jesú. "Hvað þarf ég að gera?"

"Finndu bara út um fólkið sem er að koma hingað, spyrðu þau um líf þeirra, fjölskyldur og þess háttar. Síðan ákveðurðu hvort þau eru þess verðug að komast inn eða ekki."

"Allt í lagi, hljómar ekki erfitt."

Jesús situr og bíður við hliðið þegar eldri maður gengur upp að því. Jesús biður manninn um að koma til sín og spyr hann hvað hann hafi gert á meðan hann var á lífi.

"Ég var trésmiður" svaraði maðurinn.

Jesús minnist þá eigin jarðnesku tilvist og spyr manninn "Áttirðu einhverja fjölskyldu?"

"Já, ég átti son, en ég týndi honum."

Jesús hallaði sér fram aðeins. "Týndirði syni þínum? Geturðu sagt mér meira um hann?"

"Ja, hann var með göt í höndum og fótum..."

Jesús hallaði sér enn framar og hvíslaði, "pabbi?"

Gamli maðurinn leit rannsakandi á hann, hallaði sér að honum og hvíslaði, "Gosi?" 
fimmtudagur, september 16, 2004
 
Aldrei gefa fólki í megrun súkkulaðiköku

Ef þið eruð þannig gerð að samviskubit er eitthvað sem höfðar til ykkar þá skulið þið endilega baka stóra og sæta súkkulaðiköku, síðan skulið þið bjóða einhverjum sem ekki má borða súkkulaði, vegna megrunar helst. Þetta leiðir af sér mjög áhugaverða takk en "þú ert algjör fáviti" stöðu, sem almennt ber að forðast ef viðkomandi er á annað borð skynsamur. Betur er þá að bjóða gulrótarköku, speglt brauð eða jafnvel bara hundasúra, því það er hugurinn sem skiptir máli ...segi ég og glotti. 
laugardagur, september 11, 2004
 
Bíbí hittir heiminn

Tilraunir pafágauksins minns til að skilja heiminn eru oft mjög áhugavert áhorfunarefni. Til dæmis finnst honum músin og lyklaborðið mjög áhugaverðir hlutir, en hann getur þó ómögulega skilið hvers vegna ég er alltaf að hamra á þessu. Sömuleiðis finnst honum gítarinn minn mjög framandi, eftir að hafa fylgst með honum nógu oft er ég alveg viss um að hann telji að hljóðið komi örugglega úr þessu gráa plasti sem ég held svo fast í, enda hættir hljóðið þegar hann nær því. Honum finnst þó líka gaman að búa til hljóð með því og verður hann alltaf jafn hissa þegar eitthvað sem hann gerir veldur *klank* hljóði.

Annars er mjög áhugavert að fylgjast með honum reyna að ná áttum í þessum fáránlega heimi sem við höfum skapað fyrir okkur. Honum farnast ágætlega og ég held að hann muni spjara sig, ég er þó ekki jafn viss með gullfiskana. 
þriðjudagur, september 07, 2004
 
Fyrirmynd

Hérna er afar óskýr mynd af mér og helmingnum af vinnuskólahópnum mínum fyrir nokkrum vikum síðan að taka á móti viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarhópur. Mamma var svo stolt. 
mánudagur, september 06, 2004
 
Kollgátan*

Ég hugsaði með mér að þeir hlytu að vera orðnir örþrifafullir fyrst hringt var í mig út af þessu, en brosti þó, sagði að þetta gæti jafnvel verið skemmtilegt og ákvað að slá til. Ég vissi ekki alveg hvað fólst í þessu og hafði því nokkrar áhyggjur af því aðég myndi lítið geta orðið að gagni en eftir að fyrstu spurningarnar höfðu verið bornar fram sá ég að við ættum jafnvel smá möguleika á að verða okkur ekki til skammar.

Við stóðum okkur með prýði og vorum yfir mest allan leikinn en í endann þá fengum við ekki nema eitt stig fyrir þriggja stiga vísbendingaspurningu um anarkisma, mér leið eins og algjörum hræsnara, get aldrei aftur með stolti sagst anarkisti.

Eftir bráðabanann þá sátum við eftir með sárt ennið og raunvísindadeild hrósaði sigri, en við börðumst þó af miklu afli og grétum því ekki ósigurinn.

Mér leið svo mun betur eftir að fylgjast með gettu betur meisturum í læknadeild fara hamförum á móti viðskipta- og hagfræðideild þar sem þeir tóku öll stig nema hraðaspurningar (sú síðarnefnda fékk 15 stig í hraðaspurningum og lokaniðurstaðan var 17 stig á móti 43). Það var því vottur af gleði að vita að við þyrftum þó ekki að keppa á móti þeim.

*Fyrir þá sem ekki vita þá er Kollgátan spurningarkeppni á milli deilda í háskólanum sem er haldinn einu sinni á ári á stúdentadögum Háskóla Íslands. Fyrirkomulagið er það sama og í Gettu betur keppni framhaldsskólanna, það eru þrír í liði úr hverri deild, spyrill, dómarar og stigaverðir, hraða-, vísbendinga- og bjölluspurningar.  
föstudagur, september 03, 2004
 
Myndir segja meira en mörg orð geta

Ég vildi að ég hefði eitthvað að segja.

Það eru nokkrar myndir á Andjörð
17.18:12  Miðvikudagurinn  13. Október




Það sem hljómar í eyrunum um það bil núna:
Anti Flag - Mobilize
Sage Francis - Personal Journals
The Dillinger Escape Plan - Miss Machine
Coheed and Cambria - In Keeping Secrets of Silent Earth
CRASS - Best Before
Belle and Sebastian - If you're feeling sinister
Kid Dynamite - Shorter, Louder, Faster
Rancid - Life won't wait

Það sem er mitt::
Andhiminn
Andjörð
Senda mér e-ð
Gestabókin
Dálkurinn á dordingull.com
Greinar á Vantrú
Betrefi á rokk.is
Halda upp á mig!

Eldri skrif:
Ágúst (2004)
Júlí (2004)
Júní (2004)
Maí (2004)
Apríl (2004)
Mars (2004)
Febrúar (2004)
Janúar (2004)
Desember (2003)
Nóvember (2003)
Október (2003)

Aðrar lífverur og þeirra heimasíður:
Árni bróðir
Kolbrún Ýr
Sigga frænka
Harpa
Guðný Lára
Eikey
Hildur
Siggi Pönk
Gunni frændi
Mæja
Unnur
Elfa Dröfn
Einhver gaur
Óli Gneisti
Hlín
Ásdís
Hitt kórfólkið

Aðrar vefsíður:
7½ teiknimyndir
Dordingull.com
Háskólakórinn
S Á L A
Vantrú
Andspyrna
Rokk.is

Site Meter gestir síðan 4. nóvember 2003



Powered by Blogger