sunnudagur, ágúst 29, 2004
 
Getum við ekki útrýmt dýrategundum sem fara í taugarnar á okkur?

Gísli Már Gíslason, prófessor í líffræði við Háskóla Íslands hafði þetta að segja um mýflugur á vísindavef háskólans.

Mý skiptist í rykmý sem er bæði i stöðuvötnum og straumvötnum og bitmý sem er aðeins í straumvötnum. Auk þess eru nokkrar aðrar ættir sem eru miklu fáliðaðri.

Mýflugur eyða mestum hluta lífsferils síns sem lirfur á botni vatna og eru einkennandi fyrir botndýralíf í stöðuvötnum og ám í öllum heimshlutum. Mýið er mikilvæg fæða fyrir önnur skordýr, fiska og fugla. Til dæmis er mý um 70% af fæðu urriða í Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu.

Rykmý er einnig mikilvæg fæða fyrir silung og endur í öllum vötnum á Íslandi og víðar. Í Mývatni getur rykmý verið allt að 90% af fæðu bleikju, en hlutfallið sveiflast eftir því hvernig öðrum botn- og svifdýrum vegnar (það er krabbadýrum).

Af þessu má sjá að mýflugur gegna mjög mikilvægu hlutverki í vistkerfi vatna. Tilvera þeirra hefur því annan og meiri tilgang en að pirra okkur mannfólkið.


Sem sagt, fiskar borða mýflugur, en myndu borða annað ef mýið væri ekki þarna. Gott að vita að eini raunverulegi tilgangur þeirra á jörðinni er að gera okkur lífið leitt, er engin leið að útrýma þeim alveg? 
fimmtudagur, ágúst 26, 2004
 
Um tíma og aldur

Síðan menn voru ung dýrategund hafa þeir greint á milli daga og árstíða með hinum ýmsum hætti, þó bara ef það hentaði þeim. Í daga var ekki mikið stress í gangi og tíminn var einungis hjálpartæki, ekki þrælameistari. Við þráum mörg að vera ung og hafa meiri tíma, enda hefur vonmikla trúin á hið eilífa líf eftir dauðan farið fjarandi undanfarið. Ekki vil ég þó vera yngri, mér finnst frábært að vera eldri en ég var í gær, þrátt fyrir mörg einkenni gráa fiðringsins síðan ég var 18 ára, enda kominn með þó nokkur grá hár.

Á þessum björtu og tilfininngablendnu nótum þá vil ég óska honum bróður mínum til hamingju með afmælið, en hann hefur náð þeim merka áfanga 26 í dag.  
miðvikudagur, ágúst 25, 2004
 
Fimm próf í sumar

Fimm próf á tíu dögum, geri aðrir betur, eða verr, eftir því hvernig litið er á þetta. Svo er biðin eftir einkununum, þessar einkar erfiða bið. En ég er búin, búin í prófum og fyrir það er ég þakklátur. 
sunnudagur, ágúst 22, 2004
 
Góða menningarnótt

Ég get svo svarið það, fleiri manns voru án efa komnir saman í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi heldur en nokkru sinni fyrr. Ég held jafnframt að ég hafi aldrei verið umkringdur jafn mikið af fólki. Alveg magnað. 
laugardagur, ágúst 21, 2004
 
Tíminn líður...og líður...

eins og svefnleysis dofi á lyfseðilsskyldu amfetamíni.

Þessi hér er án efa einhver svalasta mannsekja í heimi. 
þriðjudagur, ágúst 17, 2004
 
Það er gert hvað sem er annað en að læra

Áðan horfði ég á derhúfuna mína fara í hringi í þvottavelinni í rúmlega tíu mínútur. 
sunnudagur, ágúst 15, 2004
 
Í gær var sumar, í dag er haust

Ég áttaði mig á því mér til mæðu að sumarið er að verða búið. Þetta gerist alltaf einu sinni á ári víst. Það tekur alltaf smá tíma að aðlagast breytingunni; frá blóma í fölnun. Um leið og aðlögunin er búin þá verður allt aftur í lagi, en þetta umbreytingarskeið þoli ég illa. Út af einhverjum ástæðum líður mér alltaf eins og barni á þessu tímabili, og ekki á góðan hátt, mér líður eins og ég sé óöruggur og eitthvað slæmt sé að gerast sem ég get ekki gert neitt við.

Þetta var ágætis sumar á heildina litið, þó ég viti að ekki séu allir sammála mér þar. Ég geri ráð fyrir því að framhaldið verði líka með besta móti. 
laugardagur, ágúst 14, 2004
 
Eigum við að gerast bjartsýn

og breyta nafninu í Eldland?

Ég er búin að vera nokkuð duglegur að taka myndir og senda inn myndir á myndasíðuna. Síðan er ég ennþá að taka til nokkrar gamlar myndir til að losa um smá pláss í símaminninu. Það er þægilegt að þurfa ekki að láta myndirnar á netið heldur bara senda þær þangað beint úr símanum. Legg til að allir sem eigi myndavél á sínum síma nýti sér þessa, enn-sem-stendur, ókeypis tækni. 
föstudagur, ágúst 13, 2004
 
Það var töluð mikil þýska heima í gærkvöldi

Það er búið að henda mér út úr herberginu mínu. Þjóðverjarnir gerðu það.

Reyndar flutti ég nú bara upp í gestaherbergi á meðan þýskir gestir nýta sér hina fínu aðstöðu sem er mín hæð hússins.

Mér datt ekki í hug hversu slæmt það væri að vera í húsinu sínu og geta ekki farið inn í herbergið sitt. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt um sjálfan sig. 
 
Dömur mínar og herrar

Það hófst, eftir rúma tvo áratugi af misheppnuðum tilraunum þá tókst það, ég fór í kollhnís! Já, þetta kallar meira að segja á upphrópunarmerki! Margir hafa reynt, en fáum mistekist.

Ég sé hvernig nýjar dyr ljúkast upp með endalausum möguleikum, ég gæti orðið fótboltastjarna, eða fimleikamaður sem keppir á Olympíuleikunum. Já, möguleikarnar eru endalausir, flugeldar springa við hvert fótatak og ég velti því fyrir mér hvort ég eigi að fá mér umboðsmann.

Annars var þetta ekkert svo merkilegt, svo ég sýni nú smá hógværð, það var ekki eins og ég hafi hoppað um af gleði. Nei, ég er nefnilega ekki alveg kominn svo langt að geta hoppað ennþá... 
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
 
Hvar liggja mörkin á glæpum, og þá einnig glæpum án fórnarlamba?

Ég fékk sem sagt þá hugmynd hjá bróðir mínum að setja á fót myndasíða. Njótið vel. 
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
 
Talandi um veðrið...

Svakalega gott veður í dag, svona á þetta víst að vera út vikuna. Frábært. Ábyggilega fínt að fara í fallhlífarstökk í svona veðri. Kannski að fara í gólf jafnvel, eða líka bara ágætt að vera inni að læra eftir nóg af sól og hita í vinnunni. Samt er ég ekki að gera neitt af þessu. 
föstudagur, ágúst 06, 2004
 
Sumarið er tíminn

"Bíddu, eru engir jöklar í Danmörku?" segi ég og glotti þegar Lasse sagði mér frá því að honum langaði svo að fara upp á Vatnajökul. Honum finnst svo merkilegt að vera í snjó á sumrin.
"Hehe, en eru einhverjir skógar á Íslandi?" svarar hann og hlær. Þá læri ég ýmislegt um íslenska skóga frá starfsmönnum okkar ungu. Þá sérstaklega um Hallormsstaðaskóg. Hann þurfti að sætta sig við það að við hefðum jú skóg(a).

Ég hef mjög gaman af sýn útlendinga á Íslandi, þó svo að mér finnist hér mikið og oft fallegta þá er viðmiðið mitt alltaf brenglað af vana mínum á umhverfinu, ekkert hér kemur mér á óvart eins og þeim sem hafa hér ekki komið áður þegar vitið var orðið nógu þroskað til að meta fegurðina. Eða kannski er ég bara of upptekinn af sjálfum mér til að vera sama.

En jæja, hvað gerði ég í vinnunni í dag annað en að tala um jökla og skóga? Jú, ég borðaði köku og mjólk, svo pizzu, spilaði spil og leiki. Svo fór ég upp í Keiluhöll og fékk meiri pizzu og rústaði strák í pool, ókei hann var fimm ára en sigur er sigur. Ég ætla samt að hætta að monta mig út af vinnunni minni, ég er með svo mikið samviskubit yfir því að vera ekki að læra að ekkert er skemmtilegt partí...ég meina núna. 
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
 
Kvikmyndir

Ég sá tvær myndir nýlega. Aðra þeirra vegna þess að hún var ekki bandarísk og hina vegna þess að hún var góð mynd. Það er ótrúlega uppörvandi að horfa á myndir sem eru ekki bandarískar, maður er einfaldlega búin að sjá allt of mikið af þeim, þær koma varla lengur á óvart. En stundum koma góðar bandarískar myndir, svona inn á milli allra hundruða ömurlegu myndanna. 
mánudagur, ágúst 02, 2004
 
Frídagur verslunarmanna í auðveldis samfélagi

Ég þreif bílinn minn í gær, eitthvað sem gerist kannski tvisvar á ári. Svo fór ég út um kvöldið og lagði fyrir utan Ellefuna. Einhver ældi á bílinn minn, beint á húddið eins og gangstéttin hafi ekki verið nógu góð. Þvílíka tillitsleysið. Ef þú kannt ekki að drekka, annað hvort ekki gera það eða farðu út úr bænum og ældu yfir fjöll, tjöld og vini þína. Ekki það að ég sé pirraður eða neitt þannig, ég skolaði þetta bara af.

Verslunarmenn í Reykjavík fengu sinn frídag 1894 og hefur þessi dagur breyst með ýmsu móti fram að okkar dögum. Til dæmis var hann alltaf 2. ágúst fram til 1930 þegar ákveðið var að hafa hann fyrsta mánudaginn í ágúst.

Ég veit ekki hvort verslunarmenn höfðu það í huga fyrir rúmri öld að þetta yrði mesta drykkjarhátíð okkar íslendinga, veit ekki hvort það sé ráðagerð nokkurra heilvitra manna.

Ætli það megi teljast til hræsni eða kaldhæðni að verslunarmenn séu eiginlega þeir einu sem gefa ekki frí þessa helgi? 
sunnudagur, ágúst 01, 2004
 
Akureyri norðursins

Ég komst ekki til Akureyrar um helgina. Svolítið leiðinlegt en væntanlega fyrir bestu. Engir peningar og meiri tími til að læra og gera annað sem skiptir meira máli en að heimsækja norðurið sér til skemmtunar.

Það er sem sagt ekki eitt af mínum stóru áhyggjum í lífinu að komast ekki út úr bænum um verslunarmannahelgi. Það er ágætt.

Reglur og ritun

Ég er alveg hættur að skrifa nokkuð af viti hérna. Vonandi er það einungis áhrif sumarsins og allt komist í lag þegar hausta tekur. Samt kemst ég ekki hjá því að rifja upp þá frumreglu þessu vefrits að skrifa einungis eitthvað sem vit er í, og það hef ég lítið gert af undanfarna mánuði. En svona er þetta, fólk breytist, vefrit breytast, reglurnar byrja að verða óljósar eftir því sem minna er þörf á þeim; menningin breytist með okkur og við með henni. 
17.19:02  Miðvikudagurinn  13. Október




Það sem hljómar í eyrunum um það bil núna:
Anti Flag - Mobilize
Sage Francis - Personal Journals
The Dillinger Escape Plan - Miss Machine
Coheed and Cambria - In Keeping Secrets of Silent Earth
CRASS - Best Before
Belle and Sebastian - If you're feeling sinister
Kid Dynamite - Shorter, Louder, Faster
Rancid - Life won't wait

Það sem er mitt::
Andhiminn
Andjörð
Senda mér e-ð
Gestabókin
Dálkurinn á dordingull.com
Greinar á Vantrú
Betrefi á rokk.is
Halda upp á mig!

Eldri skrif:
Ágúst (2004)
Júlí (2004)
Júní (2004)
Maí (2004)
Apríl (2004)
Mars (2004)
Febrúar (2004)
Janúar (2004)
Desember (2003)
Nóvember (2003)
Október (2003)

Aðrar lífverur og þeirra heimasíður:
Árni bróðir
Kolbrún Ýr
Sigga frænka
Guðný Lára
Eikey
Hildur
Siggi Pönk
Gunni frændi
Mæja
Unnur
Elfa Dröfn
Einhver gaur
Óli Gneisti

Kórfólkið:
Harpa
Hlín
Ásdís
Ýrr
Lára Kristín
Gaui
Erna María
Krunka
Svanhvít
Rakel
Heiða

Aðrar vefsíður:
7½ teiknimyndir
Dordingull.com
Háskólakórinn
S Á L A
Vantrú
Andspyrna
Rokk.is

Site Meter gestir síðan 4. nóvember 2003



Powered by Blogger