![]() |
föstudagur, júlí 30, 2004
Ég ætla víst til Akureyrar á morgunn, gaman af því, en allavega... Lítil rauðklædd stelpa liggur með augun lokuð, í stóru rúmi með stóra sæng sem amma og afi eiga. Önnur hendin fyrir aftan haus og hin vel teigð, munnurinn lokaður og kinnarnar rjóðar á útiteknu andliti. Amma hennar hafði farið í símann og þegar hún kom aftur hafði stelpan sofnað yfir matnum sínum. En nú rumskar hún ekki þó ég ryksugi allt í kringum hana. Það tekur því ekki að reyna ekki að vekja hana, ryksugan sér til þess. En engu að síður hreyfir hún ekki svo mikið sem augnhár í þessum djúpa miðdegisblundi sínum. Hvað ætli svona fallegt barn dreymi? fimmtudagur, júlí 29, 2004
Hreinn fugl í hendi er betri en... Bíbí hefur nú mikið gaman af því að fara í steypibað. Hann gengur fram eftir handlegg mínum alla leið niður á hönd, síðan stingur hann hausnum sínum undir bununa í stutta stund og svo hristir hann duglega. Þetta getur hann gert í langan tíma, ekki ég þó því hann vill hafa vatnið kalt sem þýðir að höndin mín allt nema frýs undan vatninu. Síðan er hann fagurgrænn, blár og ferskjulitaður og hreinn. Hann er algjört krútt. Gaman af þessu. Já, og svona eftir leiðinni þá erum við (isa) að spila á tónleikum í kvöld á De Palace (á móti þar sem Thompsen var, við hliðin á þar sem Freddi var og á móti Rammagerðinni. Sem sagt á milli Bæjarins beztu og Lækjartorgs). Veislan hefst uppúr tíu og með okkur spila einhver drum'n'bass sveit og Dikta. miðvikudagur, júlí 28, 2004
mmmmm... Það var ótrúlega góð tilfinning að setjast upp í bílinn minn og keyra af stað. Alveg frábær. Stundum veit maður ekki hvað maður hefur fyrr en maður missir það. Rosalega er ég háður bílnum mínum. Svo virðist sem tímareimin hafi verið vel slitin og það hafi verið orsakavaldurinn á dauða bílsins, en nú lifnaði hann við og allir eru ánægðir. þriðjudagur, júlí 27, 2004
Til hamingju með ammælin stelpur! Eftir hádegi í dag lagðist ég í sólbað, fór í hakkísakk, borðaði kökur, spilaði Trivial Pursuit og fékk borgað fyrir það. Það hljómar nokkuð vel bara. Tvær stelpur í hópnum mínum áttu sko afmæli í dag, gott tilefni fannst mér. Eitthvað fyrir þá sem eru eitthvað að velta því fyrir sér hvernig ég nenni að vinna í unglingavinnunni, það er lítið hægt að kvarta, þó svo að krakkarnir finni alltaf eitthvað...sussumsvei! Og hvernig var vinnudagurinn þinn? sunnudagur, júlí 25, 2004
Eigum við að hjálpa öðrum? Ódýrasta bensínið á Íslandi þessa daganna er í Kópavogi, þetta er litlu fyrirtæki að nafni Atlantsolíu að þakka. Ég er þeim mjög þakklátur því ég þarf að borga aðeins minna fyrir vikið. Ekki að það skipti neinu máli núna þar sem bíllinn minn bilaði núna á laugardaginn. Allt í einu fór snúningur vélarinnar minnkanndi og á endanum hætti hún alveg að hreyfast. Nokkrar ástæður gætu verið fyrir þessu, til dæmis er olían á bílnum mínum skaðbrennd þar sem ég skipti aldrei um hana, ætli ég hafi ekki seinast látið skipta um olíu desember '99 eða eitthvað svoleiðis. Annars veit ég ekkert hvað er að bílnum mínum, en ég get þó huggað mig við það að það er næstum vafalaust mér að kenna en ekki blessaða bílnum mínum sem hefur þjónað mér svo vel. Staðreyndin er sú að ég hef varla efni á neinum viðgerðum, kannski ég selji bílinn, svo verður bara að koma í ljós hvort ég kaupi nýjann eða nota strætisvagna bæjarins, það hlýtur að venjast. Það eru mikil þægindi að hafa bíl, ekki þó að það skipti neinu máli, öllu er hægt að venjast og í leiðinni er það mikið vesen að eiga bíl, endalaus kostnaður og svo vilja allir fá far alltaf, og stundum jafnvel leiðinlegt fólk, þó oftast ekki en ég nenni samt ekki að skutla þeim. Ekki taka það nærri ykkur samt, þið vitið ekkert hvort þið eruð. Kannski ég selji bílinn minn og noti eitthvað af peningum sem fóru í hann í að hjálpa fólki sem þarf á mikilvægari hlutum en bíl að halda. Ekki að ég sé mikill baráttumaður á slíka hluti, ég á allt of mikið í fangi með sjálfan mig, ég er einfaldlega ekki kominn á það stig að geta hjálpað öðrum, kannski er það vanþroski, kannski er það sjálfselska, ekki veit ég meir. Sem betur fer er ekki allt fólk eins og ég. Á þeim nótum ætla ég að plögga hana Siggu frænku mína. Hún er að safna núna fyrir vinum sínum í Indlandi, skoðuð endilega á síðunni hennar. Mér finnst hún alveg æðisleg og ég er alveg viss um að hún fái mikið út úr svona hjálparstarfi. Allir hafa sín áhugamál, sum eru gagnlegri en önnur. Ég vildi að ég hefði áhuga á bílum eða hjálparstarfi. mánudagur, júlí 19, 2004
Stórgóð útilega Veit ekki hvort er verra, kláðinn eða þreytan. Nei, ég veit það alveg, þreytan er alveg að gera útaf við mig. Ég skemmti mér nefnilega nógu vel til að sofa lítið um helgina, ef það hljómar á einhvern hátt rökrétt. Átta mýbitum ríkari, þar af sjö á hægri fæti, og jafnmörgum bjórum fátækari er ég kominn aftur til siðmenningar þar sem ég nýt allra þeirra forrétinda sem við tökum réttilega sem sjálfsögðum hlutum. Annars hefði ég alveg getað verið lengur, útilífið var orðið vani og hjónavindsængin hans Árna er undarlega nokk þægilegri en rúmið sem ég hef hér heima. Eina sem ég hef að kvarta yfir eru þessar bölvuðu mýflugur, sem mega alveg deyja út mín vegna. Þá kemur flugnanet sér vel. Verst hvað það er erfitt að borða með það á sér. Ég veit samt ekki hvort tjaldið fái að koma með út úr bænum í bráð. fimmtudagur, júlí 15, 2004
Ég er að fara í útilegu Það er þegar maður sefur í tjaldi og veltur því fyrir sér hvers vegna forfeður manns börðust fyrir velsæmi bara til þess að maður geti hent öllu út upp á grínið. Reyndu að segja þeim að við tjöldum úti okkur til gamans og við hlaupum vegna þess að við þurfum að halda okkur í formi þar sem við gerum ekkert allan daginn. En ekki láta þar við sitja, segðu þeim að við höfum búið til sérstök hús þar sem þessi líkamsrækt á sér stað og við borgum góðan pening fyrir hana. Í dag fór ég á línuskauta. Það var ekki eins og erfitt og ég hélt ekki að það yrði. Ég lét mér nægja einn hring á svellinu íslausa og sast aftur niður til að telja krakkana sem þar voru, enda var það starf mitt í dag. Hið ljúfa líf vinnuskólans, ég veit ekki hvað þessir krakkar eru að kvarta yfir, aldrei ánægð. Glott. þriðjudagur, júlí 13, 2004
We are singing the happy song, happy song, happy song. We're all singing the happy song, dumdidumdumdei... Frum, bætist við ao. og við þykjumst vita hvað það þýðir Ég er þakklátur öllum þeim póst-módernistum sem þurftu að ganga fram af fólki með rugli bara til þess að við megum vera smá skrítinn í dag. Ég er vanþákklátur öllum þeim gráðugu sem settu sinn hag fram yfir annara bara til þess að við höfum markað í dag. Ég er þakklátur þeim sem fannst sjálfsagt að vera öðruvísi og þeim tíðaranda sem leyfði þeim að vera það. Ég er vanþakklátur öllum þeim sem skilja það ekki. sunnudagur, júlí 11, 2004
Hver skapaði sýklana? Keyrði framhjá Helga Hós með svona rosalegt fínt skilti. Mjög viðeigandi í núverandi deilum sköpunar- og þróunarsinna. Ég get eiginlega ekki lýst því hvernig mér leið þegar ég var að borga fyrir bjórkippuna mína á föstudag og þurfti að gjöra svo vel og færa mig til þess að öryggisvörðurinn í búðinni gæti dregið mann þaðan út þar sem hann sat með krosslagðar fætur og neitaði að fara. Ætli allt þetta áfengi sem var svo stutt innan seilingar en samt svo langt frá munninum hafi ekki gert manninn ósköp dapran þennan dag. Ég kvittaði undir fyrir kaup mín, stakk kreditkortinu aftur í vasann og steig klofvega yfir mann sem nú lá á gólfinu við útganginn. Hann neitaði enn að fara út og það seinasta sem ég sá var að vörðurinn sá sig knúinn til að meiða manninn í tilraun til að fá hann út. Rónar eru víst ekki líka fólk. miðvikudagur, júlí 07, 2004
Ungar geitur? Áðan fundu nokkrar stelpur með tilþrifum stórt geitungabú í beði sem þær voru að vinna í, þið hefðuð átt að heyra skrækina. Ég hef aldrei haft það í mér að vera hræddur við geitunga svo ég fór ansi nálægt til að skoða búið, með þeim afleiðingum að einn þeirra réðst á mig og stakk mig í augabrúnina. Nú get ég loksins sagst hafa verið stungin af geitungi. Það er ekki ólíkt því að fá deyfisprautu í sig hjá tannlækni, smá stingur og smá dofi. Stungan er mjög lítið bólginn sem þýðir að ég er að minnsta kosti ekki með ofnæmi fyrir þeim. Fóstrurnar á rólóinu sem við vorum á hringdu snögglega á meindýraeyði hjá bænum og hann kom og lagaði allt, með tilheyrandi lykt. Annars er ég ekki ennþá orðin hræddur við geitunga, þetta var ekki einu sinni neitt sérstaklega vont. Og þar hafið þið það. laugardagur, júlí 03, 2004
|
17.20:00 Miðvikudagurinn 13. Október
Það sem hljómar í eyrunum um það bil núna: Anti Flag - Mobilize Sage Francis - Personal Journals The Dillinger Escape Plan - Miss Machine Coheed and Cambria - In Keeping Secrets of Silent Earth CRASS - Best Before Belle and Sebastian - If you're feeling sinister Kid Dynamite - Shorter, Louder, Faster Rancid - Life won't wait Aðrar lífverur og þeirra heimasíður: Árni bróðir Kolbrún Ýr Sigga frænka Guðný Lára Eikey Hildur Siggi Pönk Gunni frændi Mæja Unnur Elfa Dröfn Einhver gaur Óli Gneisti Kórfólkið: Harpa Hlín Ásdís Ýrr Lára Kristín Gaui Erna María Krunka Svanhvít Rakel Heiða
Aðrar vefsíður:
|